Innlent

Sóley, Guðrún Ebba og Stóra systir fengu viðurkenningar

Stígamót útdeildu viðurkenningum ársins í dag á alþjóðlegum degi gegn kynferðisofbeldi. Á heimasíðu samtakanna segir að í ár hafi sjónum verið beint að „þeim hugrökku konum sem á ólíka vegu hafa fylgt réttlætiskennd sinni og rutt brautina fyrir raunverulegt kvenfrelsi.“

Þá segir að sumar hafi þær dansað á mörkum hins löglega og fyrir það hafi þær allar mætt ýmis konar andstöðu.

„Á Stígamótum trúum við því að slíkar konur gegni mjög mikilvægu hlutverki.  Það er kominn tími til að hampa þeim og lyfta þeim upp í ljósið.  Láta alþjóð vita að við stöndum með þeim og séum þakklátar fyrir hugrekki þeirra.  Ekki veitir af á Íslandi ef við viljum með réttu teljast paradís kynjajafnréttis.“

 

Verðlaunahafar ársins voru þær:

Berit Aas, professor emerita

Guðrún Ebba Ólafsdóttir

María Lilja Þrastardóttir

Margrét Pétursdóttir

Sóley Tómasdóttir

Aðgerðahópurinn Stóra systir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×