Viðskipti innlent

Endurgreiða 20% af vöxtum af lánum einstaklinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landsbanki Íslands.
Landsbanki Íslands.
Landsbankinn mun endurgreiða 20% af vöxtum af lánum einstaklinga og heimila sem greiddir hafa verið frá 31. desember 2008 til 30. apríl síðastliðins. Þetta nýtist öllum einstaklingum sem voru í skilum við bankann þann 30. apríl. Endurgreiðslan kemur til lækkunar eftirstöðva skulda en ef viðskiptavinur er skuldlaus verður endurgreiðslan lögð inn á innlánsreikning viðkomandi. Í tilkynningu frá Landsbakanum segir að endurgreiðsla vaxta af meðalháu húsnæðisláni á þessu tímabili hlaupi á hundruðum þúsunda króna. Endurgreiðslan er að hámarki 1 milljón króna. Þeir vextir sem þegar hafa verið endurgreiddir koma til frádráttar.

Endurgreiðsla vaxta er ein þriggja nýrra leiða sem Landsbankinn hyggst fara til að bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann til að lækka skuldir sínar. Bankinn áætlar að þessar þrjár leiðir snerti á bilinu 60. - 70.000 viðskiptavini en skipti verulegu máli fyrir ríflega 30.000 manns.

Önnur leiðin sem Landsbankinn mun fara er að gera tvær mikilsverðar breytingar á svokallaðri 110% leið sem miðuð er að þeim viðskiptavinum sem eiga yfirveðsett húsnæði. Nú verður miðað við fasteignamat á eignum undir 30 milljónum króna en ekki við verðmat. Þetta þýðir að úrvinnsla mála gengur mun hraðar fyrir sig en áður hefur verið og í mörgum tilvikum verður það til að lækka áhvílandi skuldir enn frekar.

Í þriðja lagi mun Landsbankinn lækka aðrar skuldir lántaka sem teljast umfram greiðslugetu. Undir þetta falla meðal annars yfirdráttur og skuldabréfalán, lánsveð og fleira en ekki t.d. kortaskuldir eða lán sem eru með veði í fasteign eða bifreið skuldara. Niðurfærsla þessara skulda getur numið allt að 4 milljónum króna, en hún verður gerð að undangengnum sjálfvirku greiðslumati. Til þess að fá niðurfellingu skulda verða lántakar að veita Landsbankanum heimild til að meta greiðslugetu sína og gera samning við bankann um að eftirstöðvar verði greiddar með skilvísum greiðslum á 36 mánuðum. Miðað er við að greiðslur af eftirstöðvum annarra skulda fari ekki yfir 10% af ráðstöfunartekjum ársins 2010.

Nánar má lesa um aðgerðir Landsbankans í meðfylgjandi fréttatilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×