Körfubolti

Pavel og Margrét Kara valin best

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pavel var frábær í vetur.
Pavel var frábær í vetur.
KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Margrét Kara Sturludóttir voru í gærkvöldi valin bestu leikmenn Iceland Express-deildanna í körfubolta á lokahófi KKÍ sem haldið var á Broadway.

Efnilegustu leikmennirnir voru Ægir Steinarsson úr Fjölni og Bergþóra Tómasdóttir sem einnig spilar með Grafarvogsfélaginu.

Alla verðlaunahafa kvöldsins má sjá hér að neðan:

Prúðustu leikmenn IEX deilda:

Prúðasti leikmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna:

Hildur Sigurðardóttir - KR

Prúðasti leikmaðurinn í Iceland Express-deild karla:

Ægir Þór Steinarsson - Fjölnir

Bestu erlendu leikmenn IEX deilda:

Besti erlendi leikmaður Iceland Express-deild kvenna:

Jacquline Adamshick - Keflavík

Besti erlendi leikmaður í Iceland Express-deild karla:

Marcus Walker - KR

Bestu varnarmenn IEX deilda:

Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna:

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR

Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild karla:

Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík

Bestu ungu leikmenn IEX deilda:

Besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna:

Bergþóra Tómasdóttir - Fjölnir

Besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express-deild karla:

Ægir Þór Steinarsson - Fjölnir

Besti leikmaður úrslitakeppni kvenna:

Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík

Besti leikmaður úrslitakeppni karla:

Marcus Walker - KR

Besti dómari Iceland Express-deildum:

Sigmundur Már Herbertsson

Bestu þjálfarar IEX deilda:

Besti þjálfari Iceland Express-deild karla:

Hrafn Kristjánsson - KR

Besti þjálfari Iceland Express-deild kvenna:

Jón Halldór Eðvaldsson – Keflavík

Úrvalslið Iceland Express deildar karla og kvenna:

Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík

Pavel Ermolinskij - KR

Margrét Kara Sturludóttir - KR

Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík

Birna Valgarðsdóttir – Keflavík

Brynjar Þór Björnsson - KR

Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík

Jón Ólafur Jónsson - Snæfell

Ragna Margrét Brynjarsdóttir- Haukar

Sigurður Gunnar Þorsteinsson- Keflavík

Bestu leikmenn IEX deilda:

Besti leikmaður Iceland Express-deildar kvenna:

Margrét Kara Sturludóttir - KR

Besti leikmaður Iceland Express-deildar karla:

Pavel Ermolinskij – KR

Kolbeinn Pálsson fékk heiðurskross KKÍ fyrir sín miklu störf fyrir KKÍ síðustu áratugi og er Kolbeinn fjórði sem fær þennan mikla heiður. Áður höfðu Bogi Þorsteinsson, Einar Ólafsson og Einar Bollason fengið heiðurskross KKÍ.

Rögnvaldur Hreiðarsson, Þóra Melsteð og Ágúst Kárason fengu öll silfurmerki KKÍ fyrir óeigingjarnt starf í gegnum árin og eru þau vel að þessu komin.

Stöð 2 Sport og Iceland Express fengu sérstakar viðurkenningar fyrir sinn þátt í þeirri uppbyggingu sem hefur verið á körfuboltanum sl. ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×