Innlent

Flugumferðarstjórar aflýstu verkfalli

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Félag flugumferðastjóra hefur aflýst verkfalli sem átti að hefjast klukkan sjö í fyrramálið. Fulltrúi þeirra tilkynnti Kristjáni Möller samgönguráðherra þetta um klukkan sjö í kvöld.

Áður hafði verið upplýst að ríkisstjórnin hefði komið sér saman í dag um að lög yrðu sett á verkfallið.

Til stóð að Alþingi kæmi saman klukkan hálfátta í kvöld og samþykkja lögin.

Þar með er ljóst að hvorki verður verkfall á morgun eða á mánudaginn.














Tengdar fréttir

Lög hugsanlega sett á verkfall flugumferðarstjóra

Flugumferðarstjórar hafa setið á fundum með viðsemjendum síðan klukkan eitt í dag. Hlé var gert á fundinum um fjögur og funduðu þá aðilar hver í sínu horni. Verkfall flugumferðarstjóra skellur á klukkan sjö í fyrramálið að óbreyttu.

Ákveðið að setja lög á flugumferðarstjóra

Lög verða sett á deilu flugumferðarstjóra við Flugstoðir til að koma í veg fyrir fjögurra stunda verkfallsaðgerðir þeirra í fyrramálið. Ríkisstjórnin kom saman á fundi klukkan sex til að ræða lögin. Alþingi verður kallað saman í kvöld þar sem lögin verða væntanlega lögð fyrir í kvöld með afbrigðum og samþykkt áður en verkfallið hefst. Verkfallið var áformað klukkan sjö í fyrramálið en upp úr fundi samninganefnda Félags flugumferðastjóra og SA slitnaði um fimmleytið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×