Hart deilt um þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 16. mars 2010 23:12 Dimmt yfir Reykjavík.
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, utan Ólaf F. Magnússon, sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Ólafur greiddi gegn tillögunni sem felur meðal annars í sér að hækka ekki skatta né hækka útsvar. Þá er stefnt að því í áætlun meirihlutans að fasteignaskattar verði ekki heldur hækkaðir. Á sama tíma vill meirihlutinn halda uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni. Ólafur lét bóka á fundi bæjarstjórnar í dag, sem lauk klukkan átta í kvöld, að „ekki væri tekið með ákveðnum hætti á þeim óráðsíuframkvæmdum og lántökum sem meirihlutinn stendur fyrir," og því greiddi hann gegn áætluninni. Samfylkingin var ósátt við að meirihlutinn féllst ekki á breytingatillögu borgarfulltrúa flokksins. Hún varðaði svokallað átak í viðhaldsverkefnum og framkvæmdir á næstu þremur árum. Þeir sátu því hjá. Líkt og Ólafur bókaði Samfylkingin óánægju sína sem var eftirfarandi: „Ljóst er að Reykjavíkurborg getur ekki haldið uppi atvinnu- og framkvæmdastigi í borginni, ein og sér. Jafnmikilvægt er að borgin axli sína ábyrgð á að bregðast við erfiðri stöðu í atvinnumálum og sitji ekki aðgerðarlaus hjá. Að halda uppi framkvæmdastigi er eðlilegur hluti af því." Við þessari bókun brugðust borgarfulltrúar meirihlutans. Í tilkynningu sem barst frá þeim fyrr í kvöld kom eftirfarandi fram: „Enginn ágreiningur er uppi í borgarstjórn Reykjavíkur um mikilvægi atvinnu og framkvæmda og hafa Reykjavíkurborg og dótturfélög hennar áætlað á árinu 2010 að ráðast í arðbærar og mannaflsfrekar framkvæmdir fyrir um 26 milljarða króna á sama tíma og ríkisvaldið leggur aðeins fram um 10 milljarða á landsvísu. Það vekur því athygli að varaformaður Samfylkingarinnar og einn helsti talsmaður ríkisstjórnarinnar, Dagur B. Eggertsson, skuli gera athugasemdir við framkvæmdir í Reykjavík þegar staðreyndir sýna að Reykjavíkurborg hefur staðið mun öflugri vörð um atvinnuástand og framkvæmdastig í núverandi efnahagsumhverfi en ríkisvaldið, sem ætti þó í ljósi stærðar sinnar, hagstjórnarhlutverks og kröfu Samfylkingarinnar í borgarstjórn, að gera miklu mun betur."
Tengdar fréttir Dagur: Ráðhúsið orðið eitt helsta vígi frjálshyggjunnar Ráðhús Reykjavíkur er orðið eitt helsta vígi frjálshyggjunnar eftir hrun, að mati Dags B. Eggertsson oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Hann segir að í þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar sé gert ráð fyrir að 11% atvinnuleysi haldist óbreytt til 2013 og að athygli veki að borgastjóri boði engin viðbrögð heldur einungis 70% niðurskurði í framkvæmdum borgarinnar næstu þrjú árin. 16. mars 2010 15:27 Engar skattahækkanir áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarinnar Engar skattahækkanir eru áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarstjórnar sem meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks samþykktu á borgarstjórnarfundi í dag. Þá segir í tilkynningu frá borgarstjórn að hvorki er gert ráð fyrir hækkun útsvars né fasteignaskatta en haldið verður uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni. 16. mars 2010 20:30 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira
Dagur: Ráðhúsið orðið eitt helsta vígi frjálshyggjunnar Ráðhús Reykjavíkur er orðið eitt helsta vígi frjálshyggjunnar eftir hrun, að mati Dags B. Eggertsson oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Hann segir að í þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar sé gert ráð fyrir að 11% atvinnuleysi haldist óbreytt til 2013 og að athygli veki að borgastjóri boði engin viðbrögð heldur einungis 70% niðurskurði í framkvæmdum borgarinnar næstu þrjú árin. 16. mars 2010 15:27
Engar skattahækkanir áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarinnar Engar skattahækkanir eru áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarstjórnar sem meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks samþykktu á borgarstjórnarfundi í dag. Þá segir í tilkynningu frá borgarstjórn að hvorki er gert ráð fyrir hækkun útsvars né fasteignaskatta en haldið verður uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni. 16. mars 2010 20:30