Innlent

Ingibjörg Sólrún enn með heilaæxli - myndband

„Það tókst aldrei að fjarlægja allt æxlið og því er hluti af því eftir," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar.

Hún var í viðtali við Ísland í dag í kvöld þar sem hún ræddi um niðurstöðu Alþingis vegna ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Þá var einnig kosið um að ákæra Ingibjörgu en sú tillaga var felld.

Ingibjörg greindist með heilaæxli á svipuðum tíma og hrunið gekk yfir Ísland árið 2008. Hún þurfti að gangast undir aðgerðir vegna þess. Svo virðist sem læknum hafi ekki tekist að fjarlægja allt æxlið.

„Það er fylgst með því og á meðan það stækkar ekki þá er það í lagi," segir Ingibjörg sem segist þó líða ágætlega.

„Mér hefur liðið vel síðan ég steig út úr stjórnmálunum." segir Ingibjörg sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun og í raun hafi hún haft góðar heilsufarslegar afleiðingar fyrir hana.

„Það er nöturlegt að segja það en en ég komst að því að lífið er talsvert betra fyrir utan stjórnmálin," sagði Ingibjörg Sólrún sem segist ekki ætla að snúa aftur í stjórnmálin. Hún sé búin að fá nóg í bili.

Spurð hvort henni þætti ekki óþægilegt að vita af æxlinu í höfði sér svaraði Ingibjörg: „Neinei. Það má öllu venjast."




Tengdar fréttir

Ingibjörg Sólrún: Mér finnst þetta dapurlegt

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar forystu Vinstri grænna um pólitíska ofsóknir í Landsdómsmálinu og segir að ákærunar standist ekki lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×