Innlent

Ráðherra framlengir hugsanlega kjarasamning flugumferðastjóra

Allar líkur eru á að samgönguráðherra leggi fram frumvarp sem framlengir kjarasamning flugumferðastjóra fram í nóvember, hafi samningar ekki tekist um miðjan dag á morgun.

Fjögurra stunda vinnustöðvun flugumferðastjóra á að hefjast klukkan sjö á miðvikudagsmorgun. Þeir funduðu með viðsemjendum sínum hjá Ríkissáttasemjara í dag og hefur annar fundur verið boðaður klukkan hálf tíu í fyrramálið. Segir ríkissáttasemjari að sáttarhugmyndir hafi verið kynntar í dag en viðræður hefjist aftur um klukkan hálf tíu á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×