Innlent

Átján ára gamalt par handtekið vegna vörslu fíkniefna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan. Mynd/ Pjetur.
Piltur og stúlka, bæði 18 ára, voru handtekin eftir húsleit í Reykjavík um helgina. Að sögn lögreglu hafði staðið þar yfir samkvæmi nokkurra ungmenna á aldrinum 17-20 ára en innandyra fundust fíkniefni. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana.

Þá var fjórum bílum stolið á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn þeirra kom fljótlega í leitirnar og var piltur um tvítugt handtekinn vegna málsins.

Lögreglan brýnir það enn og aftur fyrir fólki að bílar séu ekki skildir eftir ólæstir og í gangi. Það megi alls ekki skilja lykla eftir í kveikjulásum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×