Matur

Saltfiskur í hátíðarbúningi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Steiktur og ofnbakaður saltfiskur með hvítlaukskeim, sellerírótarstöppu og léttsteiktri lauk-, ólífu- og tómatblöndu. Þorlákur segir saltfiskinn verða að vera vel útvatnaðan áður en hann er steiktur.
Steiktur og ofnbakaður saltfiskur með hvítlaukskeim, sellerírótarstöppu og léttsteiktri lauk-, ólífu- og tómatblöndu. Þorlákur segir saltfiskinn verða að vera vel útvatnaðan áður en hann er steiktur. Fréttablaðið/GVA

Í kaþólskum sið hefur löngum verið hefð fyrir því að dregið sé úr kjötáti síðustu vikur fyrir jól, eins og orðið jólafasta felur í sér. Af þeim sið eimir enn eftir hér á landi og sjálfsagt þykir að neyta fisks á Þorláksmessu. Hér er tillaga að góðum saltfisk.

Þorlákur Guðmundsson, vert í Salthúsinu í Grindavík, kveðst hafa kynnst fjölbreyttri matreiðslu saltfisks á Spáni, Portúgal og Ítalíu er hann var í millilandasiglingum á yngri árum.

„Ég var vanur soðnum saltfiski að heiman en þarna sá ég hvað hægt var að gera. Þegar ég var orðinn skips­kokkur fór ég að leyfa mér að prófa ýmsa hluti og fyrst voru menn hikandi að smakka en svo komust þeir á bragðið," segir hann.

Nafn veitingastaðarins og sú staðreynd að Grindavík er einn stærsti útflutningsbær saltfisks á Íslandi varð til þess að leitað var til Þorláks eftir uppskrift að saltfiskrétti. Hann hefur sér til fulltingis matreiðslumeistarann Hajie Flores Sieat frá Filipps­eyjum sem er flinkur að matreiða og líka meistari í skreytilist. Þeir félagar taka fram að saltfiskur megi alls ekki vera saltur þegar hann sé steiktur, því þurfi að útvatna hann vel.

Saltfiskur með sellerírótarstöppu og laukblöndu
Hajie Flores og Þorlákur Guðmundsson í Salthúsinu í Grindavík.

Fyrir fjóra

800 g saltfiskhnakkar vel útvatnaðir

svartur pipar

ögn af hveiti

ólífuolía

brauðmylsna

hvítlaukssmjör

Skerið saltfiskinn í fjóra jafna bita og kryddið örlítið með svörtum pipar. Veltið þeim upp úr hveiti og steikið upp úr ólífu­olíunni, um það bil tvær mínútur á hvorri hlið. Færið fiskinn upp á fat og setjið brauðmylsnu og hvítlaukssmjör ofan á. Setjið fatið í 170 gráðu heitan ofn í um það bil 15 mínútur.

Sellerístappa

1 kg sellerírót

750 g gulrætur

1 l rjómi

2 msk. hunang

1 msk. grænmetiskraftur

1 tsk. kjötkraftur

6 greinar ferskt timjan tekið af stilknum

svartur pipar

Skrælið sellerírót og gulrætur og skerið í litla bita. Setjið allt hráefni í pott og sjóðið þar til það er mjúkt. Færið það yfir í matvinnsluvél og hrærið vel. Þykkið það síðan örlítið með Maggi kartöflumús.

Laukblanda

2 laukar skornir í báta

12 kirsuberjatómatar skornir í fernt

16 ólífur

ólífuolía

hvítlaukssmjör

Maldonsalt

svartur pipar

Léttsteikið lauk, tómata og ólífur í hvítlaukssmjöri og ólífuolíu. Kryddið örlítið með Maldonsalti og pipar. Þá er rétturinn tilbúinn á borð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×