Innlent

109 kíló af fíkniefnum komu með skútunni

Hluti fíkniefnanna á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun.
Hluti fíkniefnanna á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun. MYND/PJETUR

Á blaðamannafundi sem haldinn var á lögreglustöðinni á Hverfisgötu fyrir stundu í tengslum við fíkniefnafund á Austurlandi í gærdag kom fram að lögreglan hafi upprætt um 109 kíló af fíkniefnum. Um var að ræða hass, maríjúana, amfetamín og einnig nokkur þúsund e-töflur. Sex hafa verið handteknir vegna málsins. Þar af voru þrír um borð í skútu sem sigldi með efnin hingað til lands, en þeir eru á leið til landsins. Þar voru tveir Íslendingar og einn Hollendingur. Einn mannanna er á þrítugsaldri og hinir tveir á fimmtugsaldri.

Talið er að mennirnir sem handteknir voru í landi í gær hafi farið á gúmmíbát frá Djúpavogi til móts við skútuna og náð í fíkniefnin. Einn mannanna var handtekinn til móts við Höfn í Hornafirði með fíkniefnin en hinir tveir í annarri bifreið á leið til Egilsstaða.

Í kjölfarið hófst leit að skútunni og fann flugvél Landhelgisgæslunnar skútuna um 65 sjómílur frá Færeyjum. Varðskip Landhelgisgæslunnar sigldi síðan skútuna uppi og fóru menn frá sérsveit Ríkislögreglustjóra um borð og handtóku mennina sem veittu ekki mótspyrnu við handtökuna. Nú siglir skútan undir eigin vélarafli til landsins og er búist við henni hingað til lands á morgun.

Rannsókn á málinu hafði staðið yfir í nokkurntíma en aðgerðirnar í gær báru fljótt að að sögn lögreglu.

Skútan var skráð í Belgíu en ekki er hægt að greina að svo stöddu frá því hvaðan mennirnir voru að koma. Ljóst er að Hollendingurinn hefur áður komið til Íslands. Helmingurinn af efnunum er hvítt efni, amfetamín eða kókaín, og töluvert magn er af maríjúana.

Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að aðgerðir lögreglu upp á síðkastið hafi borið árangur því ekki hafi sést svo mikið magn af maríjúana lengi.

Mennirnir þrír sem handteknir voru í landi í gær vegna málsins eru frá Selfossi og Hveragerði. Jónas Árni Lúðvíksson fæddur árið 1979, Pétur Kúld Pétursson fæddur árið 1981 og Halldór Hlíðar Bergmundsson fæddur árið 1977. Þeir hafa allir komið við sögu lögreglu áður.


Tengdar fréttir

TÝR á leið til hafnar með mennina

Mennirnir þrír sem taknir voru um borð í skútunni sem notuð var í stærsta fíkniefnasmygli sögunnar í gær eru enn um borð í varðskipinu TÝ. Friðrik Smári Björgvinsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að skipið fari hægt yfir þar sem skútan er með í togi. Hann segir óljóst hvenær von sé á skipinu til hafnar en sennilega verði það ekki fyrr en seint í kvöld.

Einn hinna handteknu áður siglt skútu til Hornafjarðar

Einn hinna handteknu í skútumálinu sem kom upp í dag hefur áður siglt skútu til Hafnar í Hornarfirði. Um er að ræða þrítugan karlmann sem áður hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.

Grunaður eiturlyfjasmyglari í meðferð fyrir fjórum mánuðum

Yngsti smyglarinn af þremur sem voru handteknir við Djúpavog og Hornafjörð í gær vegna gruns um tilraun til þess að smygla hundrað kílóum af fíkniefnum til landsins með skútu, var í meðferð fyrir fjórum mánuðum síðan.

Þrír menn handteknir um borð í skútunni

Sérveitarmenn handtóku nú fyrir skömmu þrjá menn um borð í skútu fyrir austan land sem grunur leikur á að hafi verið notuð til að flytja rúmlega 100 kíló af fíkniefnum til landsins. Varðskipið TÝR stöðvaði skútuna eftir langa eftirför.

Nokkrir handteknir og þyrlur lentar

Þyrlur Landhelgisgæslunnar er lentar á Höfn í Hornafirði og Fokker vél gæslunnar var að taka á loft. Ekki þykir ljóst hvað er um að vera en samkvæmt heimildum Vísis þá veitti gæslan smyglskútu eftirför.

Skútunnar enn leitað - tugir kílóa haldlögð

Lögreglan leitar enn að skútunni samkvæmt fréttatilkynningu sem lögreglan sendi frá sér vegna fíkniefnamálsins. Lögreglan hefur lagt hald á tugi kílóa af fíkniefnum en þeir vilja ekki gefa upp hvaða tegund um er að ræða en þær eru fleiri en ein.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×