Íslensk kvikmyndagerð verður drepin 3. október 2009 20:13
Íslensk kvikmyndagerð verður drepin og íslenskum sjónvarpsþáttaseríum á borð við Rétt og Pressuna verður slátrað ef Kvikmyndasjóður verður skorinn niður um þriðjung, segir Ari Kristinsson formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, eins og ráðgert er í fjárlagafrumvarpinu. Hann furðar sig á að kvikmyndageirinn skuli ein listgreina lenda harkalega undir niðurskurðarhnífnum. Niðurskurðarhnífurinn er á lofti í ríkisfjármálunum eins og við var búist. En urgur er í kvikmyndagerðarmönnum sem töldu sig eiga von á viðlíka niðurskurði og aðrir - þegar fjárlagafrumvarpið leit dagsins ljós varð skýrt að svo var ekki. Niðurskurður til menningarmála er almennt fremur lítill, uppundir fimm prósent þar sem mest er, eins og sést hér á litlu úrtaki, hins vegar sker kvikmyndasjóður sig verulega úr - og er skorinn niður um 200 milljónir króna - eða nærri 34%. Hljóta að vera mistök, segir Ari Kristinsson formaður Sambandsins, sem trúir ekki sínum eigin augum. Bara fjárhagsleg rök sýni að slíkur niðurskurður sé óhagkvæmur fyrir ríkið, því hann muni minnka veltu kvikmyndageirans um einn milljarð. Samningur var gerður árið 2006 um að efla gerð heimildamynda og leikinna sjónvarpsþáttasería - sem sannarlega hefur sést á skjám landsmanna síðustu ár með þáttum eins og Pressunni, lögmannadramanu Rétti, Fangavaktinni og Hamar sem hefst á Ríkissjónvarpinu á morgun.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira