Innlent

Nýr formaður SUS: Skilur gagnrýnisraddir varðandi leiguflug

Breki Logason skrifar
Ólafur Örn Nielsen nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segist skilja að vissu leyti þær gagnrýnisraddir sem hafa verið uppi um kosningar til formanns sambandsins um helgina. Einungis átta atkvæði skildu að Ólaf og keppinaut hans, Fanneyju Birnu Jónsdóttur. Leiguvél með 50 stuðningsmönnum Ólafs mætti á Ísafjörð á sunnudagsmorgun til þess að taka þátt í kosningunum.

„Kostnaðurinn er miklu minni en látið er að í fjölmiðlum. Ef fólk reiknar út hvað flug kostar í dag þá sér það fljótt að slíkar tölur eru ekki í spilunum," segir Ólafur og á þar við kostnað upp á rúmar tvær milljónir sem hefur heyrst.

Aðspurður hverjir hafi greitt fyrir flugið og þátttökugjöld fólksins segir Ólafur stuðningsmenn sína hafa tekið sig saman og kostað þetta.

„Framboð mitt bar brátt að og eftir að ég tilkynnti þetta vildu vinir mínir og fjölskylda koma og kjósa mig. Það er af og frá að um einhverja smölun hafi verið að ræða enda þarf fólk að skrá sig á þingið með nokkra vikna fyrirvara. Það liggur því alveg fyrir hverjir hafa atkvæðisrétt löngu fyrir þingið. Það má nú líka alveg nefna það að það kom eitthvað af fólki sem var ekki á mínum vegum þarna á sunnudeginum," segir Ólafur.

Hann segir eðlilegt að einhver kostnaður fylgi framboði sem þessu en segist að vissu leyti skilja þær gagnrýnisraddir sem hafi heyrst og snúa að leiguvélinni.

„En það er hinsvegar mjög eðlilegt að menn sem eru í framboði reyni að afla sér eins mikils fylgis og þeir geta. Í þessu tilviki var flugið eini möguleikinn í stöðunni því ég ákvað þetta seint. Við fundum á þinginu að mikill áhugi var fyrir því að bjóða upp á annan valkost í þetta embætti og ég ákvað að láta slag standa. Ég er því gífurlega þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk," segir Ólafur.

Hann segir þó leiðinlegt að fókusinn hafi allur beinst að þessum málum en ekki að sambandinu sjálfu. „Þar er stóra verkefnið að afla flokknum fylgis á ný hjá ungu fólki, sem hefur algjörlega hrunið. Markmið mitt sem formaður er að ná því upp og ég hlakka til að takast á við það verkefni," segir Ólafur að lokum.




Tengdar fréttir

Nýr formaður kjörinn í SUS

Ólafur Örn Níelsen var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna á sambandsþingi sem fram fór á Ísafirði um helgina. Fanney Birna Jónsdóttir fyrrverandi formaður Heimdallar bauð sig fram gegn Ólafi og hlaut Ólafur 106 atkvæði en Fanney Birna 98.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×