Erlent

Minnst níu­tíu mót­mælendur hand­teknir í Hong Kong

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lögreglan hefur handtekið hátt í hundrað mótmælendur sem hafa mótmælt frestun þingkosninga í Hong Kong. Kosningarnar áttu að fara fram í dag en þeim hefur verið frestað um ár, sem gengur þvert á stjórnarskrá sjálfstjórnarhéraðsins.
Lögreglan hefur handtekið hátt í hundrað mótmælendur sem hafa mótmælt frestun þingkosninga í Hong Kong. Kosningarnar áttu að fara fram í dag en þeim hefur verið frestað um ár, sem gengur þvert á stjórnarskrá sjálfstjórnarhéraðsins. EPA-EFE/JEROME FAVRE

Minnst níutíu mótmælendur voru handteknir í Hong Kong í dag, sunnudag, eftir að til áttaka kom milli lögreglu og mótmælenda. Lögregla skaut meðal annars kúlum sem dýft hafði verið í piparsprey á mótmælendur sem eru ósáttir með ákvörðun stjórnvalda að fresta þingkosningum í Hong Kong.

Kosningarnar áttu að fara fram í dag, 6. september, en yfirvöld hafa frestað þeim um ár og segja það nauðsynlegt vegna fjölgandi kórónuveirusmita á svæðinu. Stjórnarandstaðan hefur sakað yfirvöld um að nýta sér faraldurinn sem skálkaskjól til að meina fólki að kjósa.

Mikil reiði hefur verið meðal stjórnarandstöðunnar eftir að kínversk öryggislög voru innleidd í sjálfstjórnarhéraðinu fyrir tilstilli Kommúnistaflokks Kína og ríkisstjórn Hong Kong. Stjórnarandstaðan vonaðist til að ná meirihluta á þinginu í kosningunum en aðeins er kosið um helming þingsæta í einu. Hin þingsætin sitja aðilar sem eru að mestu hliðhollir Kommúnistaflokknum.

Lögreglumaður heldur uppi skilti sem á stendur að mótmælin séu ólögleg og mótmælendur skuli forða sér eða lögreglumenn beiti þá valdi.EPA-EFE/JEROME FAVRE

Frestun kosninganna fer gegn stjórnarskrá Hong Kong bæði þar sem stjórnarskráin segir að hvert kjörtímabil megi ekki vera lengra en fjögur ár og vegna þess að hún segir að ekki megi fresta kosningum í meira en tvær vikur.

Eins og fyrr segir hafa minnst níutíu mótmælendur verið handteknir í dag og var aðgerðasinninn Tam Tak-chi, sem hefur orðið nokkuð þekktur stjórnarandstöðuaðgerðasinni, handtekinn sakaður um að hafa flutt ræður sem gætu vakið hatur og reiði í garð stjórnvalda.

Hann var handtekinn af lögreglu sem heldur uppi nýjum öryggislögum Kína í Hong Kong sem innleidd voru í júní og hefur glæpavætt ýmsar leiðir til pólitískrar tjáningar.


Tengdar fréttir

Bandaríkjamenn beita Lam refsiaðgerðum

Bandaríska fjármálaráðuneytið sagðist í dag ætla að beita Carrie Lam, leiðtoga heimastjórnar Hong Kong, og tíu aðra embættismenn í Kína og Hong Kong refsiaðgerðum.

Fresta kosningum í Hong Kong

Carrie Lam, æðsti embættismaður Hong Kong, hefur ákveðið að fresta þingkosningum þar. Vísaði hún til aukinnar útbreiðslu nýju kórónuveirunnar sem ástæðu og sagðist hún njóta stuðnings Kommúnistaflokks Kína.

Táningar hand­teknir á grund­velli öryggis­laganna

Reiði er á meðal mótmælenda í Hong Kong eftir að fjórir námsmenn voru hnepptir í varðhald í borginni á grundvelli nýrra öryggislaga. Sumir hinna handteknu hafa ekki náð 20 ára aldri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×