Handbolti

Yfirlýsing frá Þorbergi Aðalsteinssyni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorbergur Aðalsteinsson.
Þorbergur Aðalsteinsson.
Þorbergur Aðalsteinsson, stjórnarmaður HSÍ og fyrrverandi landsliðsþjálfari, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

1.

Ég mætti í þáttinn Utan vallar á Sýn á eigin vegum sem áhugamaður um handbolta. Til að taka af allan vafa, var ég þar ekki í umboði HSÍ og hafði raunar ekki samráð við neinn þar vegna þessa.

2.

Í þættinum lýsti ég skoðun minni á þeim viðræðum sem HSÍ átti við þá Dag Sigurðsson, Geir Sveinsson og Aron Kristjánsson, enn á ný sem áhugamaður um handbolta. Ég tók ekki beinan þátt í þeim viðræðum, en ég hafði vissulega hugmynd hvernig þær fóru fram. Þar með braut ég trúnað við stjórn HSÍ og þá þrjá einstaklinga sem höfðu verið í viðræðum við HSÍ. Ég biðst afsökunar á þessu og harma að það hafi gerst.

3.

Ég hef fullan skilning á ákvörðun þeirra þriggja manna sem viðræður voru við og óska þeim velfarnaðar í þeirra störfum. En hefði viljað sjá þá sem landliðsþjálfara Íslands.

4.

Varðandi samskipti þau er ég lýsti í þættinum milli framkvæmdastjóra og stjórnar HSÍ um það hvort hafði rætt við Ólaf Stefánsson um landsliðsþjálfaramálin þá var það gert áður en ferillin fór í gang. Er það því rangt hjá mér að segja það að dagleg símtöl milli framkvæmdastjóra og Ólafs Stefánssonar hafa átt sér stað. Ég bið Einar Þorvarðarson afsökunar á þessu.

5.

Að lokum bið alla hlutaðeigandi afsökunar.

Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari


Tengdar fréttir

Þorbergur talaði ekki fyrir hönd stjórnar HSÍ

Guðmundur Ingvarsson, formaður HSÍ, segir að ummæli Þorbergs Aðalsteinssonar í þættinum Utan Vallar á Sýn í gærkvöldi hafi verið óheppileg, en tekur fram að hann hafi ekki verið að tala fyrir munn stjörnar HSÍ þegar hann skaut föstum skotum að Aron Kristjánssyni og Degi Sigurðssyni.

Formaður HSÍ vill ekkert segja

Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ, vill ekkert segja að svo stöddu um ummæli Þorbergs Aðalsteinssonar í Utan vallar á Sýn í gær.

Boltinn er hjá HSÍ

Aron Kristjánsson er afar ósáttur við ummæli Þorbergs Aðalsteinssonar í þættinum Utan Vallar á Sýn í gærkvöld þar sem hann gagnrýndi Aron og Dag Sigurðsson harðlega fyrir m.a. "slæma viðskiptahætti og kjarkleysi" í viðræðum sínum við HSÍ þar sem ráða átti landsliðsþjálfara.

Þorbergur í Utan vallar

Þorbergur Aðalsteinsson, stjórnarmaður í HSÍ, gagnrýndi þá sem höfnuðu starfi landsliðsþjálfara harkalega í þættinum Utan vallar á Sýn í gær.

HSÍ að leita til útlanda

Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ, segir að sambandið sé nú fyrst og fremst að horfa til útlanda hvað varðar ráðningu nýs landsliðsþjálfara.

Þremenningarnir þögulir

Þeir Dagur Sigurðsson, Geir Sveinsson og Aron Kristjánsson vilja ekkert segja um það sem kom fram hjá Þorbergi Aðalsteinssyni, stjórnarmanni HSÍ, í Utan vallar á Sýn í gær.

Aron hafnaði HSÍ

Aron Kristjánsson mun ekki þjálfa íslenska landsliðið í handbolta en hann er fjórði þjálfarinn sem hafnar starfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×