Innlent

Ikea hækkar um 25%

Frá og með deginum í dag hækkar verð í IKEA um 25% að meðaltali. Þetta er í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins sem fallið er frá þeirri reglu að vöruverð sé ekki hækkað á gildistíma IKEA-bæklingsins, það er frá 1. september til 15. ágúst ár hvert.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að ytri aðstæður sem einkennst hafa af afar neikvæðri gengisþróun, gerir að verkum að fyrirtækið sjái sig nauðbeygt að grípa til hækkunarinnar. Verðið verði lækkað aftur um leið og gengisþróunin gefur tilefni til.

Vöruverð breytist mismikið á milli einstakra vöruliða og vöruflokka, að jólavörum undanskildum, en verð á þeim verður óbreytt. Verðbreytingarnar munu taka gildi á næstu dögum.

„Sú atburðarás sem IKEA hefur staðið frammi fyrir undanfarið misseri er í hnotskurn, að gengi á evru, sem er sú mynt sem innkaupaverð fyrirtækisins miðast við, hefur hækkað um 90% á einu ári, þar af um meira en 40% frá því verðútreikningar fyrir 2009 IKEA-bæklinginn voru gerðir og um 35% frá því að bæklingurinn kom út," segir í tilkynningunni. Það sé því ljóst að verðhækkunin dugi ekki fyrir því gengistapi sem fyrirtækið er að verða fyrir. Á hinn bóginn sé einhugur innan IKEA um að þreyja þorrann, í þeirri von að gengisskráning íslensku krónunnar komist senn í eðlilegt horf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×