Innlent

Hjálparsveit kölluð út vegna illviðris á Hellisheiði

MYND/Stefán

Kömbunum á Suðurlandsvegi hefur verið lokað vegna blindhríðar og hefur lögregla á Selfossi verið að aðstoða ökumenn í vandræðum. Þá hefur Hjálparsveit skáta í Hveragerði verið kölluð út til að aðstoða ökumenn á Hellisheiði vegna veðurhamsins.

Þá féllu snjóflóð féllu bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi í gær og höfðu áhrif á umferð. Um kvöldmatarleytið í gær féll snjóflóð á veginn milli Súðavíkur og Ísafjarðar og þegar snjóruðningstæki kom á vettvang til að moka snjónum burt féll annað flóð og hafnaði á bílnum. Ökumanninn sakaði ekki en vegurinn var ekki mokaður í gær.

Þá var aftur lýst yfir hættuástandi í hesthúsahverfinu í Hnífsdal auk þess sem Ísafjarðardjúp og vegurinn um Óshlíð var lokaður vegna snjóflóðahættu. Segir Vegagerðin að víða sé þungfært á Vestfjörðum og jafnvel ófært en verið sé að moka.

Auk þessa er ófært eins og er vegna snjóflóðs sem féll á Siglufjarðarveg í gærkvöld en það er víða skafrenningur eða él á Norðulandi. Þá er Brattabrekka ófær en þar er verið að moka og slæmt ferðaveður er á Holtavörðuheiði og á mörkunum að það hafist undan með mokstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×