Innlent

Stendur ekki til að Samkeppniseftirlit rannsaki samráð

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir enga ákvörðun liggja fyrir um það hvort eftirlitið rannsaki meint ólöglegt samráð hjá Krónunni og Bónus. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss sagði í Kastljósinu í kvöld að ásakanirnar væru það alvarlegar að Samkeppniseftirlitið ætti að fara strax í málið.

„Okkur hafði ekki borist ábending um þetta tiltekna mál og heyrðum fyrst af því í fréttum," sagði Páll Gunnar í samtali við Vísi í kvöld. „Ef aðilar telja um brot að ræða þá er eðlilegur farvegur að beina því til Samkeppniseftirlitsins," segir Páll Gunnar. Hann bendir á að það sé meðal annars hægt að gera nafnlaust í gegnum heimasíðu stofnunarinnar.

„Við gætum tekið málið upp að eigin frumkvæði en það liggur ekkert fyrir í þeim efnum," segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×