Lífið

Systur selja dýrustu nærbuxur Íslands

Andri Ólafsson skrifar
Systurnar Sigrún Edda og Ragnheiður opna nærfataverslunina Systur á föstudaginn.
Systurnar Sigrún Edda og Ragnheiður opna nærfataverslunina Systur á föstudaginn.

"Við ætlum að vera með nærföt í hæsta gæðaflokki," segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir sem á föstudag opnar nýja nærfataverslun á Laugarvegi. Verslunin hefur hlotið nafnið Systur en það skýrist af því að Sigrún á og rekur verslunina í félagskap við systur sína, Ragnheiði Eðvarðsdóttur.

Að sögn Sigrúnar er ætlunin að selja nærföt eftir þekkta hönnuði frá Englandi og Danmörku. Hún segir að í búðinni verði aðeins seld gæðahönnun.

Sigrún segir að vöntun hafi verið á svokölluðum "high end" nærfötum fyrir konur hér á landi undanfarin ár og að verslunin Systur sé að svara henni.

"Þetta eru handsaumaðar vörur eftir nokkra af flottustu hönnuðum Englands og Danmerkur," segir Sigrún sem segist fyrir löngu orðin þreytt á einsleitu blúndunærfötunum sem flestar nærfataverslanir hér á landi selja.

Í búðinni eru undirfötin í aðalhlutverki en einnig er hægt að fá allt frá sloppum til ilmvatna. Þá eru nokkrar nærbuxur í boði sem kosta hátt í 30 þúsund krónur og hljóta því væntanlega nafnbótina dýrustu nærbuxur Íslands. Með vorinu er jafnvel von á nærbuxum og brjóstahöldurum skreytt Swarowski-kristöllum. Sigrún gerir lítið úr því og bendir á að vörunum sé ætlað að auka vellíðan kvenna. "Maður verður nefnilega að gera soldið vel við sjálfan sig," segir hún.

"Þessi búð er fyrir allar konur og svo er ég líka að vonast eftir því að karlar, kærastar og eiginmenn taki henni fagnandi. Það er aldrei að vita nema að þeir gætu haft gagn af því að versla þar eitthvað fínt fyrir maka sína."

Verslunin Systur opnar á föstudag að Laugavegi 70.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×