Innlent

Ógöngur Vilhjálms borgarstjóra

Gamli góði Villi hefur ekki verið nógu var um sig.
Gamli góði Villi hefur ekki verið nógu var um sig.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti. Nú eru um 500 dagar liðnir frá síðustu sveitastjórnarkosningum og hefur hann staðið að fjölmörgum umdeildum verkefnum. Á meðal þeirra er að gera útigangsmenn að nágrönnum leikskólabarna og gefa fjárhættuspilafyrirtæki 20 milljónir króna á silfurfati.

Nágranninn Villi Vill

Vilhjálmur úthýsti Háspennu, sem rekur fjárhættuspilakassa, úr Mjóddinni á þeim forsendum að hann vildi ekki að fyrirtækið væri með starfsemi í fjölskylduhverfi. Vilhjálmur býr skammt frá Mjóddinni. Hann lét borgina því kaupa húsnæðið sem fasteignafélag tengt Háspennu átti fyrir 92 miljónir króna. Til viðbótar fékk Háspenna afhenta glæsilega einbýlishúsalóð við Starhaga sem Vilhjálmur sagði vera 30 milljóna króna virði. Kjartan Magnússon, samherji Vilhjálms í borgarstjórn, gagnrýndi þessar ákvarðanir borgarstjóra.

Reiknikúnstnerinn Villi Vill
Eigendur Háspennu græddu milljónir á kostnað borgarbúa.

Háspenna seldi lóðina sem borgin lét af hendi fyrir 50 milljónir króna einungis örfáum mánuðum seinna. Vilhjálmur misreiknaði sig því um litlar 20 milljónir á kostnað borgarbúa.

Upplýsingafulltrúinn Villi Vill

Vilhjálmur ákvað að staðsetja heimili fyrir útigangsmenn á Njálsgötu. Langflestir íbúar í götunni fengu fyrstu fréttir um málið þegar Fréttablaðið skýrði frá því. Fjölmargar barnafjölskyldur eru í götunni og þar er starfræktur leikskóli.

Forvarnarfulltrúinn Villi Vill
Borgin og lögreglan hafa staðið saman að bættri menningu í Reykjavíkurborg.

Lögreglan og Reykjavíkurborg ákváðu að skera upp herör gegn ómenningu í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan með því að fjölga mönnum á vakt um helgar. Vilhjálmur með því að stinga upp á að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja kaldan bjór í stykkjatali.

Hinn staðfasti Villi Vill

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta í borgarstjórn gagnrýndu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Alfreð Þorsteinsson stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur fyrir áhættufjárfestingar á vegum fyrirtækisins, meðal annars með stofnun Línu.net. Eitt af fyrstu verkefnum Sjálfstæðisflokksins í meirihluta var að stofna fyrirtækið Reykjavík Energy Invest, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, sem hefur það að markmiði að stunda áhættufjárfestingar á sviði orkuiðnaðar.

Reykásinn Villi Vill
Dagar Hauks Leóssonar, sem stjórnarformanns Orkuveitunnar, verða senn taldir.

Þegar samruni Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy hafði siglt í öngstræti, meðal annars vegna himinhárra kaupréttasamninga til handa völdum gæðingum, leysti Vilhjálmur málið með því að reka vin sinn, Hauk Leósson úr embætti stjórnarformanns Orkuveitunnar. Vilhjálmur stóð að skipun Hauks Leóssonar vegna þess að hann vildi fá fagmann að stjórn fyrirtækisins. Haukur var hins vegar rekinn til að hægt væri að koma að pólitíkus í embættið.

Fjölskyldumaðurinn Villi VillVilhjálmur seldi sex daga gömlu fyrirtæki bróður síns, Svans Vilhjálmssonar, eftirsótta lóð borgarinnar við Fiskislóð í Reykjavík á spottprís í maí á þessu ári. Þá réð hann líka frænda sinn, Vilhjálm Skúlason, í góða stöðu hjá Reykjavík Energy Invest. Vilhjálmur starfaði áður sem verslunarstjóri hjá Tékk - Kristal. Hinar mörgu hliðar Villa Vill

Borgin samdi við hjúkrunarheimilið Eir um byggingu þjónustuíbúða og félagsmiðstöðvar fyrir aldraða án þess að bjóða verkið út. Minnihlutinn í borgarstjórn vildi formlegt útboð. Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri er stjórnarformaður í Eir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×