Innlent

Jón Sigurðsson hættur - Guðni nýr formaður Framsóknarflokksins

Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í morgun að hann myndi segja af sér sem formaður flokksins. Við formennnskunni tekur Guðni Ágústsson, varaformaður flokksins.

Jón segist hafa tekið ákvörðunina í gær eftir atburði síðustu daga. Sagði hann Guðna Ágústsson nú taka við og árnaði hann honum heilla í formannsstarfinu.

Jón sagði að kosningaúrslitin hefðu verið ákveðið áfall en að flokkurinn myndi ná vopnum. Þakkaði hann fyrir það tæpa ár sem hann hefði verið í embætti.

Bæði Guðni Ágútsson og Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins, þökkuðu Jóni samstarfið og sögðu að flokkurinn myndi veita harða stjórnarandstöðu á þingi á næstu árum.

Boðað verður til miðstjórnarfundar hjá flokknum fljótlega þar sem farið verður yfir málið og kosinn nýr varaformaður. Guðni sagði aðspurður að góð samstaða væri um það innan flokksins að hafa hann sem formann en það væri miðstjórnarfundar að ákveða hvort boðað yrði til flokksþings fyrr en áætlað væri en næsta flokksþing væri áætlað á vormánuðum 2009.

Guðni sagði aðspurður um stefnubreytingar með nýjum formanni að stefnumál hans væru þekkt og að siglt yrði með þann gunnfána inn í stjórnarandstöðu.

Jón Sigurðsson tók við af Halldóri Ásgrímssyni sem formaður Framsóknarflokksins í ágúst í fyrra eftir að hafa sigrað Siv Friðleifsdóttur í formannskosningum. Tók Jón fram að hann og Siv hefðu alla tíð verið góðir vinir og aðspurður vildi hann ekki viðurkenna að hann hefði tekið við slæmu búi frá Halldóri Ásgrímssyni en Halldór sagði af sér eftir slakt gengi flokksins í sveitarstjórnarkosningum.

Jón lýsti nýrri ríkisstjórn sem hægrisinnaðri nýfrjálshyggjuríkisstjórn og tók Guðni Ágústsson að hluta undir það. Þeir vildu þó ekki tjá sig frekar um stjórnina fyrr en greint hefði verið frá stjórnarsáttmála hennar í dag.

Jón ávarpar framsóknarmenn á heimasíðu flokksins þar sem hann segir helstu ástæðuna fyrir brott hvarfi sínu þá að formaður flokksins verði að hafa aðgang að ræðustól Alþingis. Ávarpið er svo:

„Ágætu Framsóknarmenn um land allt - kæru samherjar.

Við núverandi aðstæður er algerlega nauðsynlegt að formaður Framsóknarflokksins hafi aðgang að ræðustól Alþingis í stjórnmálabaráttunni sem aðaltalsmaður og leiðtogi flokksins. Þetta er skilyrði fyrir markvissu og kröftugu stjórnmálastarfi og fyrir einingu í flokknum

Ég náði ekki kjöri í Alþingiskosningunum 12. maí sl. og hef tekið þá ákvörðun að segja af mér formennsku í Framsóknarflokknum. Ég hef undanfarna daga kynnt þessa ákvörðun öðrum forystumönnum flokksins og trúnaðarmönnum í kjördæmi mínu. Beint liggur fyrir samkvæmt lögum Framsóknarflokksins að varaformaður taki við stöðu formanns við aðstæður sem þessar.

Ég flyt ykkur öllum þakkir fyrir traust, stuðning og vináttu. Ég mun leggja mig fram um að aðstoða við uppbyggingu og eflingu Framsóknarflokksins. Ég er sannfærður um að erindi Framsóknarmanna við íslensku þjóðina er brýnna en nokkru sinni fyrr.

Með flokkskveðju og þökk,

Jón Sigurðsson"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×