Erlent

Allsherjarverkfall í Ísrael

Getty Images

Alsherjarverkfall er skollið á í Ísrael þar sem verkamenn mótmæla því að fá ekki greidd þau laun sem þeim bera. Verkfallið hefur víðtæk áhrif á samfélagið allt og stendur um óákveðinn tíma.

Alþjóðaflugvöllurinn í Tel Aviv er lokaður en séð verður til þess að aðeins ein flugvél geti lent, sú sem flytur enska knattspyrnulandsliðið til Ísrael þar sem leika á í undankeppni Evrópumótsins á laugardag. Þó fótboltaliðið sjálft komist á leiðarendar er engin trygging fyrir því að enskir áhorfendur komist til Ísrael að fylgjast með leiknum.

Verkfallið hófst í morgun og stendur um óákveðinn tíma. Ekki bara er flugvöllurinn lokaður heldur einnig ríkisskrifstofur, slökkviliðsstöðvar, lestar og strætisvagnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem alsherjarverkfall lamar samfélagið í Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×