Erlent

Bannað að fara í fóstureyðingu en fékk bætur

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt pólskri konu jafnvirði rúmlega tveggja milljóna króna í bætur vegna þess að henni var á sínum tíma bannað að fara í fóstureyðingu. Konan átti á hættu að verða blind þegar hún gekk með sitt þriðja barn, en var bannað að fara í fóstureyðingu. Hún er nær alveg blind í dag.

Fóstureyðingalöggjöfin í Póllandi er með því strangasta í Evrópu en þar eru ekki framkvæmdar nema rétt um 200 löglegar fóstureyðingar á ári. Til samanburðar eru framkvæmdar um 1000 fóstureyðingar á Íslandi á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×