Erlent

Mugabe ábyrgur fyrir barsmíðum

Bandaríkjastjórn segir að stjórn Roberts Mugabe sé ábyrg fyrir barsmíðum á leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Simbabve. Nelson Chamisa, einn leiðtoga MDC, flokks Morgan Tsvangirai, var laminn illa í gær á flugvellinum í Harare af óþekktum mönnum þar sem hann var að reyna að fara úr landi.

Þá voru tugir stjórnarandstæðinga barðir af lögreglu í síðustu viku eftir að þeir voru hnepptir í varðhald á friðsamlegum útifundi. Tsvangirai sagði í viðtalil við BBC í gær að ástandið í Simbabve væri orðið mjög alvarlegt en hann spáði því um leið að þessir nýliðnu atburðir væru upphafið af endalokum stjórnartíðar Mugabe.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×