Erlent

Norðmenn viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna

Norðmenn hafa endurvakið stjórnmálatengsl við stjórnvöld í Palestínu. Varautanríkisráðherra landsins fundaði með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu í morgun. Í eitt ár hafa vesturveldin öll sniðgengið ríkisstjórn Palestínu en nú ríða Norðmenn á vaðið með samskipti við nýskipaða þjóðstjórn Palestínumanna.

Ísraelsmenn, Bandaríkjamenn og Bretar hafa gefið út að ný stjórn verði ekki viðurkennd og því sniðgengin að öðru leyti en því að rætt verður við ráðherra sem ekki eru í Hamas-samtökunum í sumum málum. Ásteytingarsteinninn er að Hamas-samtökin hafa staðfastlega neitað að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×