Erlent

Al Fayed höfðar mál á hendur fyrrverandi lögreglustjóra

Mohamed Al Fayed
Mohamed Al Fayed Getty Images

Mohamed Al Fayed verslunareigandi og faðir Dodi Al Fayed sem lést í sama bílslysi og Díana prinsessa fyrir hartnær tíu árum hefur höfðað mál gegn þáverandi yfirmanni lögreglunnar í París. Al Fayed sakar lögreglustjórann um að hafa viljandi leynt sönnunargögnum frá rannsóknarnefnd sem kannaði dauða Dodi og Díönu.

Lögreglustjórinn hefur vísað ásökunum Al Fayed á bug og sagst hafa unnið vel með rannsóknarnefndinni. Hann segir dauða Dodi og Díönu hafa verið hörmulegt slys en segist tilbúinn að taka rannsókn málsins upp að nýju komi fram einhverjar vísbendingar um að dauði þeirra hafi verið grunsamlegur.

Díana ræddi árið 1995 grunsemdir sínar um að það ætti að koma henni fyrir kattarnef en sú staðreynd kom aldrei inn á borð rannsóknarnefndarinnar. Það er einmitt það sem Mohammed Al Fayed segir hafa verið afglöp lögreglustjórans fyrrverandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×