Erlent

Bayrou verður forseti komist hann í aðra umferð

Getty Images

Ef miðjumaðurinn Francois Bayrou kemst í aðra umferð frönsku forsetakosninganna verður hann forseti. Þetta sýnir ný skoðanakönnun sem TNS-Sofres gerði fyrir útvarpsstöð í Frakklandi. Niðurstöður könnunarinnar sýna að ef Bayrou mundi mæta hægrimanninum Nicolas Sarkozy í annari umferð mundi hann hafa sigur með 54 prósentum gegn 46. Þá mundi hann sigra sósíalistann Segolene Royal með 60 prósentum gegn 40.

Þrátt fyrir þetta er enn líklegast að Nicolas Sarkozy verði næsti forseti þar sem hann hefur nokkuð góða forystu fyrir fyrri umferð kosninganna og Segolene Royal er enn með ríflega tveggja prósenta forskot á Bayrou í fyrri umferðinni. Könnunin bendir þá til þess að Sarkozy mundi sigra Royal nokkuð örugglega í seinni umferð.

Könnun TNS-Sofres




Fleiri fréttir

Sjá meira


×