Erlent

Kirkjan fellst á hjónabönd

Sænska kirkjan hefur ekkert lengur á móti því að gefa samkynhneigð pör saman með kirkjulegri athöfn, svo framarlega sem ríkið setur lög um hjónabönd samkynhneigðra. Þetta sagði Claes Bertil-Ytterberg biskup, talsmaður sænska kirkjuþingsins.

Samkynhneigðir í Svíþjóð hafa frá árinu 1994 átt þess kost að ganga í staðfesta samvist og síðan 2005 hefur sænska kirkjan boðið upp á kirkjulegar athafnir til að blessa slík sambönd.

Á miðvikudaginn í næstu viku er von á skýrslu frá opinberri nefnd um það hvort breyta eigi lögum um staðfesta samvist þannig að hjónabönd samkynhneigðra verði einnig leyfð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×