Erlent

Hafa samið um refsiaðgerðir

Mahmoud Ahmadinejad
Mahmoud Ahmadinejad

Fulltrúar sex aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna náðu á fimmtudaginn samkomulagi um hertar refsiaðgerðir gegn Íran vegna kjarnorkuvinnslu, sem þar er stunduð.

Að samkomulaginu standa öll fastaríkin fimm, Bandaríkin, Rússland, Kína, Bretland og Frakkland, auk Þýskalands. Í næstu viku verður samkomulagið kynnt hinum tíu ríkjunum, sem eiga sæti í öryggisráðinu.

Aðgerðirnar fela meðal annars í sér bann á vopnaviðskipti og fjármagnsflutninga gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum sem tengjast kjarnorkuvinnslunni í Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×