Innlent

Skoða þarf hvort verslunum sé heimilt að breyta verði á mínútufresti

Breki Logason skrifar
Tryggvi Axelsson forstjóri Neytendastofu segir að endurskoða þurfi framkvæmdir verðkannana.
Tryggvi Axelsson forstjóri Neytendastofu segir að endurskoða þurfi framkvæmdir verðkannana.

„Við höfum stöðugt verið að fá ábendingar um mismun á milli hillu og kassa og svoleiðis. En svona krassandi dæmi eins og verið er að tala um núna höfum við í sjálfu sér ekki fengið," segir Tryggvi Axelsson forstjóri neytendastofu um meint samráð verslana Bónus og Krónunnar.

Fréttastofa útvarpsins sagði í hádeginu frá meintum óheiðarlegum brotum Bónus og Krónunnar tengdum verðkönnunum og benti á fjölmarga fyrrum starfsmenn verslanana sem staðfestu að um samráð væri að ræða.

Tveir fréttamenn voru sendir útaf örkinni og versluðu fyrst sem óbreyttar húsmæður og hálftíma síðar sem fréttamenn. Í Krónunni hafði verð lækkað hálftíma síðar en verðið stóð í stað í verslunum Bónus.

Tryggvi segir að ef satt reynist sé vissulega um að ræða alvarlegt brot á samkeppnislögum en að einnig séu í gildi lög um eftirlit með ólögmætum viðskiptaháttum. „Þar segir að allar viðskiptaaðferðir sem blekkja eða villa um fyrir neytendum séu bannaðar og hægt sé að beita sektum við slíkum brotum."

Tryggvi segir einnig að neytendur hafi rétt til þess að vita um verð vöru o.s.frv. „Ef þessar athafnir sem verið er að lýsa núna í fréttum reynast sannar þá gæti það verið brot á þessum lögum."

Í mörgum búðum eru rafrænar merkingar á vörum sem gera það að verkum að hægt er að breyta verði mjög auðveldlega. Og hafa verið uppi gagnrýnisraddir með þessar aðferðir.

„Þessi umræða kom upp í sumar og við erum með umboð frá viðskiptaráðherra um að endurskoða þessi mál og erum að vinna að því. Auðvitað verðum við að aðlaga okkur að nýjustu tækni við gerð kannanna," segir Tryggvi og bætir við að einnig þurfi að skoða hvort fyrirtækjum sé heimilt að breyta verðum á mínútufresti.

Í fréttatilkynningu frá Högum hf sem reka meðal annars verslanir Bónus segir að Bónus hafi frá upphafi verið leiðandi hér á landi í sölu matvæla til almennings á lágu verði. Aldrei frá stofnun félagsins og til dagsins í dag hafi átt sér stað samráð við keppinauta á markaði. Hið sama gildi um aðrar verslanir Haga hf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×