Innlent

Umdeilt lén látið af hendi

Gunnar Rafn Birgisson.
Gunnar Rafn Birgisson.
Ferðaskrifstofan Atlantik hefur látið samtökunum Crusie Iceland eftir internetlénið cruiseiceland.is. Samtökin sjálf áttu fyrir lénið cruiseiceland.com.

Óánægja var meðal aðildarfélaga að Cruise Iceland að Atlantik skyldi nota nafn samtakanna á netinu til að beina viðskiptum að eigin ferðaskrifstofu. Frá því var sagt í Fréttablaðinu 5. október að stjórn samtakanna hefði um miðjan september óskað eftir því að Atlantik gæfi lénið crusieiceland.is eftir til samtakanna.

Daginn eftir að fréttin birtist bauðst framkvæmdastjóri Atlantik, Gunnar Rafn Birgisson, til að afhenda samtökunum lénið.

- gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×