Erlent

Rússar láta af kjarnorkuviðskiptum við Íran

MYND/AP

Rússar hafa tilkynnt írönskum stjórnvöldum að þeir muni hætta viðskiptum við þá með kjarnorkueldsneyti láti þeir ekki af auðgun úrans. Það var Igor Ivanov, ritari öryggisráðs Rússa, sem tilkynnti Hosseini Tash, fulltrúa kjarnorkumála Írana, þetta í síðustu viku. Um árabil hefur Bush bandaríkjaforseti þrýst á Vladimir Putin Rússlandsforseta að láta af þessum viðskiptum sem Íranir hafa treyst mikið á og einnig reynst Rússum afar arðbær.

Með þessu slást Rússar í hóp með fjölmörgum þjóðum og Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna sem andvíg eru auðgun Írana. Stjórnvöld í Íran hafa þegar hafnað kröfu Rússa og segjast eiga fullan rétt á að auðga Úran á sínu yfirráðasvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×