Erlent

Evrópubúar neikvæðir í garð ESB

Getty Images

Í dag eru 50 ár frá stofnun Evrópusambandsins. Af því tilefni lét Financial Times gera skoðanakönnun en samkvæmt henni segja 44% íbúa fimm Evrópusambandslanda að lífsgæði þeirra hafi versnað eftir að landið gekk í Evropusambandið.

Könnunin var gerð á meðal nær 7 þúsund íbúa Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Spánar. Þá sögðust 22 prósent aðspurðra vera þeirrar skoðunnar að land þeirra ætti að draga sig út úr Evrópusambandinu. Bretar voru þjóða neikvæðastir í garð sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×