Erlent

ESB sniðgengur þjóðstjórn

AP

Evrópusambandið ætlar ekki að viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna frekar en Bandaríkin eða Ísrael. Stjórnin verður sniðgengin og Palestínumenn fá enga fjárhagsaðstoð frekar en undanliðið ár, síðan Hamas-samtökin komust til valda.

Evrópusambandið tekur undir kröfu Bandaríkjanna um að stjórnin þurfi að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og hafna ofbeldi fortakslaust. Stjórnmálaskýrendur segja að stjórnin verði sniðgegnin eins lengi og Hamas á hlut að máli.

Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin segjast hins vegar tilbúin til þess að ræða við aðra ráðherra þjóðstjórnarinnar en þá sem eru í Hamas-samtökunum. Eftir fund í Washington í gær sögðu helstu erindrekar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins að ekkert benti til þess að stefna stjórnvalda hefði breyst tiltakanlega síðan Hamas-samtökin buðu öðrum stjórnmálaöflum sæti í stjórn. Því voru Javier Solana utanríkismálastjóri Evrópusambandsins og Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna sammála um það eftir fundinn að halda óbreyttri stefnu gagnvart Palestínustjórn.

Norðmenn ákváðu í gær að taka að nýju upp stjórnmálasamband við Palestínu, fyrstir vestrænna þjóða, og viðurkenna þjóðstjórnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×