Erlent

Strætóverkfall í Kaupmannahöfn

Strætisvagnabílstjórar í Kaupmannahöfn hafa ekki sest undir stýri þennan morguninn heldur funda þeir um kjaramál sín. Fyrir vikið liggja strætisvagnasamgöngur því sem næst niðri í borginni. Þeir krefjast rúmlega 5 prósenta launahækkunar og einnig þess að laun strætisvagnabílstjóra annars staðar í landinu verði hækkuð til samræmis. Strætisvagnastjórar á Mið-Jótlandi lögðu niður störf í gær með sömu kröfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×