Innlent

Launaleynd afnumin í þágu jafnréttis

Ingibjörg Sólrún segir mikilvæg mannréttindi að hafa leyfi til þess að segja frá launum sínum. Með því að meina fólki það sé verið að brjóta á því.
Ingibjörg Sólrún segir mikilvæg mannréttindi að hafa leyfi til þess að segja frá launum sínum. Með því að meina fólki það sé verið að brjóta á því.

Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, sem var meðal þátttakenda í umræðu um jafnréttis­mál á landsfundi Samfylkingarinnar í Egilshöll í gær, sagði það afdráttarlausa skoðun sína að afnema bæri launaleynd. Það gæti stuðlað að jafnrétti og leitt til jákvæðra breytinga í launaumhverfi fyrirtækja á Íslandi.

Í stjórnmálaályktun landsfundar­ins lýsti flokkurinn yfir skýrum pólitískum vilja til að útrýma launamun kynjanna, afnema launaleynd, koma á fullu jafnrétti milli karla og kvenna og gera Ísland að fyrirmyndarsamfélagi á sviði jafnréttismála.

„Það skiptir verulegu máli að fólk hafi leyfi til þess að segja frá launum sínum,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Með því að meina fólki það er verið að brjóta á því. Þetta er mannréttindamál.“

Hún segir sérstaklega mikilvægt fyrir konur að hafa þennan samanburð svo þær geti vitað hvað karlmenn sem starfa við hlið þeirra séu með í laun. „Það er vitað mál að konur eru almennt lægra launaðar en karlar.“

Í stjórnmálaályktuninni segir einnig að Samfylkingin vilji þjóðar­sátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum og ný vinnubrögð til að tryggja samstillingu efnahagsaðgerða.

Málefni Reykjavíkurflugvallar voru rædd á landsfundinum. Allsherjarnefnd Samfylkingarinnar samþykkti tillögu um að drög að ályktunum um flutning flugvallarins verði vísað til samgöngunefndar flokksins til umræðu síðar á árinu.

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, lagði til að umræðum um flutning framhaldsskóla til sveitarfélaga yrði frestað. Hún sagðist ekki telja flokkinn tilbúinn í alvarlegar umræður um málið og að hann ætti að gefa sér næstu fjögur ár í að ræða það betur. Málið var ekki hluti af stjórnmálaályktun flokksins.

Ársreikningar flokksins voru einnig samþykktir með rúmlega 63 milljóna króna afgangi. Rúmlega 1.400 manns voru skráðir til þátttöku á fundinum, sem lauk seinnipartinn í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×