Innlent

Nefbraut sér yngri mann

Óli Kristján Ármannsson skrifar
44 ára gamall maður var dæmd­ur í tveggja mán­aða fang­elsi, skil­orðs­bund­ið í þrjú ár, í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í gær.

Maðurinn stóð á samt fleirum í slags­mál­um á skemmti­staðnum Áttunni í Hafnarfirði aðfaranótt sunnu­dags­ins 23. janúar og var á leið út af staðn­um þegar hann skall­aði sér 20 árum yngri mann þannig að sá nefbrotnaði.

Dómurinn segir engu skipta hver átti upptökin að átökunum umrætt kvöld heldur áverkinn sem hlaust af árás mannsins, sem dómurinn segir hafa verið illskeyttari en það sem á undan var gengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×