Sport

O´Neal með 17 stig

Tröllið Shaquille O´Neal skoraði 17 stig í sínum fyrsta heimaleik með Miami Heat sem lagði Cleveland með 92 stigum gegn 84 í NBA-deildinni í körfubolta í gær. Samherji hans, Dwayne Wade, stal hins vegar senunni og skoraði 28 stig. Washington Wizards, sem var með slakasta árangurinn á útivelli í NBA á síðustu leiktíð, lagði Charlotte Bobcats 103-96 á útivelli og hefur unnið báða útileiki sína til þessa. Denver lagði Minnesota 94-92 með ævintýralegri sigurkörfu Earl Boykins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×