Sport

Ólöf enn inni fyrir lokahringinn

Ólöf María Jónsdóttir kylfingur úr GK er enn inni á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi kvenna í Bari á Ítalíu eftir þriðja hring sem leikinn var í dag. Ólöf lék hringinn í dag á 77 höggum og er hún í 30.-38. sæti fyrir lokahringinn á morgun en fækkað var niður í 50 keppendur í dag. 90 keppendur hófu leik og munu 30 efstu að mótinu loknu fá full réttindi á evrópsku mótaröðina. Keppendur í sætum 30-50 geta þó að einhverju leyti tekið þátt í evrópsku mótaröðinni og er það því góður árangur út af fyrir sig hjá Ólöfu að hafa náð þessum áfanga. Ólöf segir á heimasíðu sinni í dag að henni hafi ekki gengið eins vel í dag og fyrri dagana en kveðst ætla að setja í gírinn fyrir lokahringinn og tryggja sér full réttindi á evrópsku mótaröðina í golfi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×