Viðskipti Fjárfestar glaðir á Wall Street Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir að Countrywide Financial, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, greindi frá því að það hefði tryggt sér fjármögnun upp á 12 milljarða dala, jafnvirði 767 milljarða íslenskra króna. Gengi bréfa í skyndibitakeðjunni McDonald's og bílaframleiðandanum General Motors rauk í methæðir. Viðskipti erlent 13.9.2007 21:38 Mikill áhugi fyrir hlutafjárútboði Enex Íslenska félagið Enex, sem stendur fyrir útrás á sviði jarðvarma, hefði getað aukið hlutafé sitt um fjórum sinnum hærri upphæð en raunin varð í hlutafjárútboði sem lauk fyrr í mánuðinum. Fram kemur í tilkynningu frá Enex að félagið hafi safnað tveimur milljörðum króna í útboðinu og var mikill áhugi fyrir því. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:55 Færeyingar leiddu hækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega í Kauphöllinni í dag. Hækkunin nemur 0,25 prósentustigum og endaði hún í 7.889 stigum. Gengi bréfa í Föroya banka hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni, eða um 3,20 prósent. Landar færeyinganna í olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum fylgdi fast á eftir. Gengi bréfa í Eik banka hækkaði sömuleiðis, en nokkru minna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:35 Icelandair semur við Rolls-Royce Breski vélaframleiðandinn og þjónustufyrirtækið Rolls-Royce greindi frá því í dag að það hefði gert þjónustusamning við Icelandair til næstu fimm ára um endurnýjun og viðhald á flugvélum fyrirtækisins. Virði samningsins nemur 100 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 6,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:05 Englandsbanki veitir fé inn á markaðinn Englandsbanki veitti 4,4 milljörðum punda, jafnvirði 571 milljarðs íslenskra króna, inn í breskt efnahagslíf í dag í því augnamiði að veita fjármálafyrirtækjum ódýrara fjármagn en gengur og gerist til að draga úr óróleika á fjármálamarkaði. Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, lagði áherslu á það í ræðu sinni í gær að bankinn ætli ekki að bjarga fjármálafyrirtækjum sem hafi lent illa í óróleikanum. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:50 Óróleikinn fjármálafyrirtækjum að kenna Fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum geta kennt sér sjálf um skellinn sem þau hafa orðið fyrir síðustu vikurnar. Þetta segir Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir fyrirtækin hafa sýnt óábyrgar lánveitingar og telur að vegna viðskipta þeirra muni það taka undirmálslánamarkaðinn allt upp undir tvö ár að jafna sig. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:29 Markaðurinn 13. sept Atvinnulíf 13.9.2007 13:06
Fjárfestar glaðir á Wall Street Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir að Countrywide Financial, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, greindi frá því að það hefði tryggt sér fjármögnun upp á 12 milljarða dala, jafnvirði 767 milljarða íslenskra króna. Gengi bréfa í skyndibitakeðjunni McDonald's og bílaframleiðandanum General Motors rauk í methæðir. Viðskipti erlent 13.9.2007 21:38
Mikill áhugi fyrir hlutafjárútboði Enex Íslenska félagið Enex, sem stendur fyrir útrás á sviði jarðvarma, hefði getað aukið hlutafé sitt um fjórum sinnum hærri upphæð en raunin varð í hlutafjárútboði sem lauk fyrr í mánuðinum. Fram kemur í tilkynningu frá Enex að félagið hafi safnað tveimur milljörðum króna í útboðinu og var mikill áhugi fyrir því. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:55
Færeyingar leiddu hækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega í Kauphöllinni í dag. Hækkunin nemur 0,25 prósentustigum og endaði hún í 7.889 stigum. Gengi bréfa í Föroya banka hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni, eða um 3,20 prósent. Landar færeyinganna í olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum fylgdi fast á eftir. Gengi bréfa í Eik banka hækkaði sömuleiðis, en nokkru minna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:35
Icelandair semur við Rolls-Royce Breski vélaframleiðandinn og þjónustufyrirtækið Rolls-Royce greindi frá því í dag að það hefði gert þjónustusamning við Icelandair til næstu fimm ára um endurnýjun og viðhald á flugvélum fyrirtækisins. Virði samningsins nemur 100 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 6,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:05
Englandsbanki veitir fé inn á markaðinn Englandsbanki veitti 4,4 milljörðum punda, jafnvirði 571 milljarðs íslenskra króna, inn í breskt efnahagslíf í dag í því augnamiði að veita fjármálafyrirtækjum ódýrara fjármagn en gengur og gerist til að draga úr óróleika á fjármálamarkaði. Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, lagði áherslu á það í ræðu sinni í gær að bankinn ætli ekki að bjarga fjármálafyrirtækjum sem hafi lent illa í óróleikanum. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:50
Óróleikinn fjármálafyrirtækjum að kenna Fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum geta kennt sér sjálf um skellinn sem þau hafa orðið fyrir síðustu vikurnar. Þetta segir Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir fyrirtækin hafa sýnt óábyrgar lánveitingar og telur að vegna viðskipta þeirra muni það taka undirmálslánamarkaðinn allt upp undir tvö ár að jafna sig. Viðskipti erlent 13.9.2007 13:29
Kortaveltumet í ágúst Kortavelta var aldrei meiri en í síðasta mánuði en þá nam hún 25,5 milljörðum króna, samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Greiningardeild Glitnis segir mikinn vöxt hafa hlaupið í einkaneyslu og stefni í að hún verði myndarlegum á þessum þriðja fjórðungi. Viðskipti innlent 13.9.2007 11:42
Óbreyttir vextir Íbúðalánasjóðs Vextir Íbúðalánasjóðs eru óbreyttir í 4,85 prósentum með uppgreiðsluþóknun í kjölfar útboðs sjóðsins í morgun. Tilboð fyrir 22,1 milljarð króna að nafnvirði bárust í bréfin en sjóðurinn tók aðeins tilboðum í lengsta flokk íbúðabréfa, fyrir 9,3 milljarða á nafnvirði. Viðskipti innlent 13.9.2007 11:25
Höskuldur nýr forstjóri Nýsis Höskuldur Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, hefur verið ráðinn forstjóri Nýsis frá 1. desember. Á sama tíma lætur Sigfús Jónsson af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins en hann hefur verið framkvæmdastjóri þess síðast liðin 10 ár. Viðskipti innlent 13.9.2007 10:54
Alcatel-Lucent í vandræðum Gengi bréfa í fransk-bandaríska símtækjaframleiðandanum Alcatel-Lucent féll um rúm níu prósent á hlutabréfamarkaði í dag eftir að fyrirtækið sagðist gera ráð fyrir talsvert verri afkomu en horfur voru á vegna minni tekna og erfiðleika við samruna Alcatel við Lucent. Viðskipti erlent 13.9.2007 10:06
Rannsaka innherjasvik í Carnegie Efnahagsbrotadeild sænsku lögreglunnar hefur einn starfsmann sænska fjárfestingabankans Carnegie í haldi vegna innherjasvika. Sænska blaðið Dagbladet segir hrinu innherjasvika í landinu beinast að litlum hópi manna í sænsku fjármálalífi. Innhverjasvikin hafa komið harkalega niður á gengi bréfa í Carnegie. Viðskipti erlent 13.9.2007 09:44
Fasteignaverð lækkar í Bretlandi Fasteignaverð lækkaði lítillega í Bretlandi á milli mánaða í ágúst. Breska dagblaðið Guardian segir þetta fyrstu merki þess að samfellt hækkanaferli síðustu tveggja ára sé á enda og kennir háum vaxtastigi um. Verð á fasteignum í og við Lundúnir hefur hins vegar haldið áfram að hækka. Viðskipti erlent 13.9.2007 09:08
Peningaskápurinn ... Viðskiptaráð, en svo nefnist félag viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík, stendur í hádeginu í dag fyrir forvitnilegu þingi. Þangað kemur að norðan til að halda erindi Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri fjárfestingabankans nýja, Saga Capital. Viðskipti innlent 13.9.2007 00:01
Lítil lækkun í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega eftir sveiflukenndan dag á fjármálamarkaði í Bandaríkjunum í dag. Þrátt fyrir að gengi Bandaríkjadals hafi aldrei staðið lægri gagnvart evru þykja fjárfestar einkar bjartsýnir enda horfa þeir til þess að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti um allt að 50 punkta á vaxtaákvörðunardegi bankans í næstu viku. Viðskipti erlent 12.9.2007 20:47
Hráolíuverð í methæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu skaust í hæstu hæðir síðdegis í dag eftir að nýbirtar tölur orkumálaráðaneytis Bandaríkjanna sýndu fram á að olíubirgðir í landinu hafi dregist meira saman en gert var ráð fyrir. Verðið stendur í rúmum 80 dölum á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 12.9.2007 20:37
Ólafur Jóhann Ólafsson til liðs við Geysi Green Energy Viðræður um að bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs og Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og framkvæmdastjóri hjá Time Warner gangi til liðs við Geysi Green Energy eru á lokastigi. Samanlögð fjárfesting hinna nýju hluthafa munu jafngilda um 8,5% af hlutafé Geysis Green Energy. Viðskipti innlent 12.9.2007 19:27
Risasamningur Glitnis við Vodafone Einn stærsti fjarskiptasamningur síðari ára var undirritaður á mánudag þegar forstjóri Glitnis og forstjóri Vodafone á Íslandi undirrituðu samkomulag um kaup Glitnis á fjarskiptaþjónustu frá Vodafone næstu 5 árin. Samningurinn nær til talsíma- og farsímaþjónustu við Glitni, bæði innanlands og erlendis, auk ADSL nettenginga fyrir starfsmenn Glitnis. Viðskipti innlent 12.9.2007 15:56
Hlutabréf lækka í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í dag en Úrvalsvísitalan lækkaði um eitt prósent. Gengi bréfa í fjórum félögum hækkaði, þar af í Marel mest, eða um 0,61 prósent. Gengi bréfa í Flögu féll hins vegar um 6,45 prósent. Viðskipti innlent 12.9.2007 15:54
Hráolíuverð í hæstu hæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í hæstu hæðir í dag þrátt fyrir að Samtök olíuútflutningsríkja (OPEC) hefði samþykkt á fundi sínum í gær að auka framleiðslukvóta sína til að auka framboð af hráolíu og draga með því móti úr verðhækkunum á svartagullinu. Viðskipti erlent 12.9.2007 15:40
Býst við áframhaldandi hækkunum á matarverði Greiningardeild Kaupþings býst við áframhaldandi hækkunum á matarverði, bæði vegna gengislækkunar krónunnar og hækkandi hráefnaverðs úti í heimi. Viðskipti innlent 12.9.2007 14:55
Hveitiverð í hæstu hæðum Heimsmarkaðsverð á hveiti stendur í methæðum nú og getur það valdið nokkrum hækkunum á brauðmeti og kökum. Verðið hefur stigið hratt upp á árinu og er það nú tvöfalt dýrara en í apríl. Ástæðan fyrir hækkuninni eru þurrkar og uppskerubrestur í helstu hveitiræktunarlöndum. Viðskipti erlent 12.9.2007 12:45
Íslendingar kaupa hótelkeðju með D’Angleterre innanborðs Íslenska félagið Nordic Partners hefur fest kaup á dönsku hótelkeðjunni Remmen Hotels. Hemildir Vísis herma að kaupverðið sé einhvers staðar á bilinu 15 til 20 milljarðar íslenskra króna. Aðalhótelið í keðjunni er hið sögufræga Hotel D’Angleterre sem er einn af gimsteinum Kaupmannahafnarbúa. Auk þess eru hótelin Front og Hotel Kong Fredrik í keðjunni ásamt veitingastaðnum Copenhagen Corner við Ráðhústorgið. Viðskipti innlent 12.9.2007 12:00
Hagvöxtur yfir spám í fyrra Hagvöxtur mældist 4,2 prósent á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Greiningardeild Glitnis bendir á að þetta sé umfram spár og bendir á að gert hafi verið ráð fyrir 2,6 prósenta hagvexti í spá Hagstofunnar fyrr á árinu. Glitnir telur líkur á að Seðlabankinn dragi vaxtalækkun frekar á langinn vegna aukins verðbólguþrýstings. Viðskipti innlent 12.9.2007 11:57
Gunnlaugur mun hætta sem stjórnarformaður TM Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, mun stíga úr stól sínum á næsta hluthafafundi fýrirtækisins sem haldinn verður á næstu vikum. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi en rúm 75% hlutafjár TM skiptu um eigendur í síðustu viku. Viðskipti innlent 12.9.2007 11:49
Dalur í lægstu lægðum gagnvart evru Gengi bandaríkjadal sökk í lægstu lægðir gagnvart evru en aldrei hefur verið jafn mikil gjá á milli gjaldmiðlanna. Ástæðan fyrir lækkuninni er aukin bjartsýni fjárfesta vestanhafs á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti um allt að 50 punkta á vaxtaákvörðunarfundi sínum eftir tæpa viku. Viðskipti erlent 12.9.2007 11:34
Uppsveiflu Atlantic Petroleum lokið í bili Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í verði í Kauphöllinni í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,49 prósent. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur lækkað mest í dag, eða um 2,7 prósent. Félagið hefur verið á viðstöðulausri uppleið í Kauphöllinni vikunni og hækkað um tæp 129 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 12.9.2007 11:09
Verðbólgan mælist 4,2 prósent og eykst milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,32 prósent á milli ágústmánaðar og september og er verðbólga nú 4,2 prósent. Hún var 3,4 prósent í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 12.9.2007 09:13
Leggja áherslu á farþegaflug – og eru í skörpu flugtaki Íslensk flugmiðlun ehf., eða Icelandic Aircraft Management - IAM, heitir tíu ára gamalt fyrirtæki sem miðlar verkefnum milli flugfélaga auk þess að koma að kaupum og leigu á flugvélum. Síðustu ár hafa umsvif fyrirtækisins í útlöndum stóraukist. Óli Kristján Ármannsson tók hús á IAM og ræddi við Magnús Friðjónsson framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 12.9.2007 05:30
Þetta er ekki tímabil sem ég er stoltur af Nick Leeson komst á spjöld sögunnar árið 1995 þegar hann gerði einn elsta og virðulegasta banka Bretlands gjaldþrota með áhættusömum gjaldeyrisviðskiptum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson spjallaði við þennan alræmdasta verðbréfamiðlara í heimi um spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði og lífið eftir gjaldþrot bankans. Leeson kemur hingað til lands eftir viku og ræðir um reynslu sína. Viðskipti erlent 12.9.2007 00:01
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent