Viðskipti
Industria hlýtur verðlaun fyrir bestu nýju lausnina fyrir sjónvarp um internetið Industria hlaut í gær verðlaun frá tímaritinu Global Telecoms, fyrir bestu nýjungina á sviði sjónvarps yfir internet (IPTV) ásamt breskum samstarfsaðila sínum, Inuk Networks. Verðlaunin hlutu fyrirtækin fyrir ,,Freewire" en það er þjónusta sem er ætlað að veita öllum breskum háskólanemum aðgang að stafrænu sjónvarpi um internetið. Þjónustan hefur hlotið góðar viðtökur og er búist við að hún verði innan árs stærsta IPTV dreifingarnet Bretlands með allt að sex milljónir notenda. Jafnframt stefnir Inuk á að bjóða sömu þjónustu til háskólastúdenta í Kanada fyrir lok þessa árs. Viðskipti innlent 19.9.2007 15:11
Hlutabréf í kauphöllinni halda áfram að hækka Miklar hækkanir hafa verið á hlutabréfum í kauphöllinni það sem af er degi. Um klukkan tvö í dag hafði úrvalsvísitalan hækkað um 3,29 prósent. Viðskipti innlent 19.9.2007 14:27
Fríblöðin dönsku plumma sig Samkvæmt tölum frá TNS Gallup í Danmörku plumma fríblöðin, þar með talið Nyhedsavisen, sig mun betur en reiknað hafði verið með. Þessum blöðum var annars spáð snemmbærri gröf í fyrra. Greint er frá því í blaðinu Journalisten að á fyrri helming ársins hafi tekjur Nyhedsavisen náð rúmlega 300 milljónum kr. Viðskipti erlent 19.9.2007 12:14
Vilja orkudreifingarkerfi Evrópu ekki í hendur þriðja heims fyrirtækja Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fór þess í dag á leit við aðildarríki þess að þau gæfu sambandinu svigrúm til að stöðva tilraunir fyrirtækja utan sambandssins að eignast ráðandi hluti í dreifikerfum fyrir gas- og raforku. Viðskipti erlent 19.9.2007 12:05
Stofnfjáraðilar í SPK samþykkja samruna Á stofnfjáraðilafundi Sparisjóðs Kópavogs í gær var samruni sjóðsins við Byr einróma samþykktur. Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarformaður í SPK segir að stjórninni þyki mjög vænt um að fá svo einlægan og skýran stuðning við samrunatillöguna. Viðskipti innlent 19.9.2007 11:38
Spáir 2,6% hagvexti Hagvöxtur í ár verður 2,6% að mati greiningar Glitnis. Það er nokkru minni vöxtur en verið hefur á undanförnum árum og nægjanlega hægur til að ná hagkerfinu að hluta niður úr því þensluástandi sem það er í. Viðskipti innlent 19.9.2007 11:17
Hækkanahrina í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa tók stökkið við opnun viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Þetta er í takti við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum í kjölfar þess að bandaríski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í gær meira en vonir stóðu til. Fjármálafyrirtæki leiða hækkanahrinuna. Gengi bréfa í Existu hefur hækkað langmest, eða um tæp 6,8 prósent. Viðskipti innlent 19.9.2007 10:04
Velta Eimskips tvöfaldast Rekstrartekjur Eimskips meira en tvöfölduðust milli ára á þriðja ársfjórðungi en þær námu 387 milljónum evra eða 35 milljörðum króna samanborið við 180 milljónir evra eða 16 milljarða á sama tíma árið 2006. Rekstrargjöld námu 377 milljónum evra eða 34 milljörðum samanborið við 179 milljónir evra eða 16 milljarða árið áður. Viðskipti innlent 19.9.2007 09:07
Óbreyttir stýrivextir í Japan Bankastjórn japanska seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Fjármálasérfræðingar gerðu flestir hverjir ráð fyrir þessari niðurstöðu vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Þetta er sjöundi mánuðurinn í röð sem seðlabankinn heldur vöxtunum óbreyttum eftir að hafa hækkað þá einungis tvisvar frá árinu 2000. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:57
Baugur að taka yfir Debenhams? Breskir fjármálasérfræðingar telja töluverðar líkur á því að Baugur Group muni gera yfirtökutilboð í Debenhams eftir áramótin. Baugur jók hlut sinn í verslunarkeðjunni um 1,5% í síðustu viku og á nú 12,5% af hlutaféinu. Timesonline greinir frá þessu í dag. Viðskipti innlent 19.9.2007 08:34
Vísitölur taka stökkið á Evrópumörkuðum Helstu hlutabréfavísitölur hafa hækkað á fjármálamörkuðum í dag eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti í gær meira en vongóðust fjármálasérfræðingar þorðu að vona. Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan hækkaði um heil 3,67 prósent við lokun markaðar í Tókýó í morgun. Hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa í dag hækkað um og yfir tvö prósent í dag. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:25
Óvænt lækkun stýrivaxta Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti sína í gær um 50 púnkta eða úr 5,25% og niður í 4,75%. Þetta er mun meiri lækkun en gert hafði verið ráð fyrir og markaðir í Bandaríkjunum og víðar tóku töluverðann kipp upp á við þegar ákvörðnin lá fyrir. Hækkaði vísitala þeirra um allt að 4% Viðskipti erlent 19.9.2007 06:54
Flókin staða á fjármálamörkuðum heimsins Aðstæður á fjármálamörkuðum eru jafnvel enn erfiðari og flóknari en fólk gerir sér almennt grein fyrir, að því er fram kom í opnunarávarpi Sigurjóns Þ. Árnasonar, bankastjóra Landsbankans, þegar hagspá bankans fyrir árin 2008 til 2010 var kynnt. Yfirskrift hagspárinnar er „Í skugga lausafjárkreppu“. Viðskipti innlent 19.9.2007 06:00
Straumur frestar evruskráningu Straumur-Burðarás mun ekki skrá hlutafé sitt í evrum frá og með 20. september næstkomandi eins og til stóð. Seðlabanki Íslands gerði athugasemdir við fyrirhugaða tilhögun á verðbréfauppgjöri og því verður skráningunni frestað um sinn. Viðskipti innlent 18.9.2007 21:44
Miklar hækkanir á bandarískum hlutabréfamörkuðum Hlutabréf á bandarískum mörkuðum hækkuðu verulega í dag eftir að bandaríski seðlabankinn tilkynnti um 0,5 prósenta stýrivaxtalækkun. Alls hækkaði Dow Jones vísitalan um 2,51 prósent í dag. Viðskipti erlent 18.9.2007 20:47
Bandaríkjamenn lækka stýrivexti Bankastjórn seðlabanka Bandaríkjanna tilkynnti í dag 50 punkta stýrivaxtalækkun. Lækkunin er meiri en flestir sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Eftir lækkunina eru stýrivextir 4,75 prósent í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 18.9.2007 18:29
Íslendingar kaupa fasteignir í Noregi Fasteignafélagið City Center Properties, sem er að stærstum hluta í íslenskri eigu, hefur keypt átta stórar fasteignir í Noregi af norska fasteignafélaginu BSA Kontoreiendom. Um er að ræða sex skrifstofubyggingar og tvær byggingar sem hýsa bæði skrifstofur og vörugeymslur, alls 67 þúsund fermetrar. Sjö bygginganna eru í Osló og ein í Bergen. Viðskipti innlent 18.9.2007 16:31
Eignaupptökum fjölgar í Bandaríkjunum Upptaka banka og fjármálafyrirtækja á fasteignum og öðrum eignum í Bandaríkjunum vegna skulda einstaklinga voru 243.947 talsins í síðasta mánuði. Þetta er heilum 36 prósentum meira en í júlí og tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra. Sérfræðingar í Bandaríkjunum segjast óttast að þetta geti valdið nýrri öldu samdráttar á fasteignamarkaði vestanhafs. Viðskipti innlent 18.9.2007 16:13
Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lokun Kauphallarinnar í dag. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en fjárfestar þykja stíga varlega til jarðar áður en greint verður frá því hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum um fimmleytið. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um rúm fjögur prósent. Gengi landa Færeyinganna í Föroya banka lækkaði á móti mest, eða um 3,23 prósent. Viðskipti innlent 18.9.2007 15:44
Bjarni fundar með stærstu bönkum Englands Bjarni Ármannsson er nú í London ásamt föruneyti sínu að kynna dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjavík Energy Invest, fyrir fjárfestum. Bjarni er stjórnarformaður REI. Samkvæmt heimildum Vísis mun Bjarni meðal annars hitta fulltrúa Barclay´s, Kaupþing, JP Morgan, Royal Bank of Scotland og Morgan Stanley. Viðskipti innlent 18.9.2007 14:19
Magnús Kristinsson kaupir 40% hlut í Arctic Trucks Eignarhaldsfélag í eigu Magnúsar Kristinssonar, hefur samið um kaup á 40% hlut í Arctic Trucks. Emil Grímsson, aðaleigandi Arctic Trucks, mun áfram verða meirihlutaeigandi í félaginu. Viðskipti innlent 18.9.2007 13:43
Microsoft verðlaunar Maritech Microsoft hefur veitt Maritech verðlaun sem samstarfsaðila ársins í viðskiptalausnum fjárhagsárið 2007. Þessi verðlaun eru veitt þeim samstarfsaðila sem nær mestri sölu í viðskiptalausnum Microsoft á hverjum tíma. Viðskipti innlent 18.9.2007 11:12
Fasteignahruni spáð í Bretlandi Royal Institution of Chartered Surveyors í Bretlandi spáir því nú að Bretar horfi fram á svipað hrun á fasteignamarkaðinum þar í landi og gerðist í upphafi síðasta áratugar. Þetta kemur í framhaldi af þeim orðun Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóra Bandaríkjanna um að Bretar standi frammi fyrir meiri vanda en gerðist á bandaríska fasteignamarkaðinum nýlega. Greenspan lét þau orð falla í samtali við The Daily Telegraph í gærdag. Viðskipti erlent 18.9.2007 10:56
Bankarnir rétta úr kútnum Bankar og fjármálafyrirtæki hafa rétt aðeins úr kútnum í kauphöllinni er viðskipti hófust í morgun. Eins og kunnugt er af fréttum lækkaði hlutafé í þessum félögum umtalsvert í gærdag. Bæði Landsbankinn og Straumur-Burðarás hafa hækkað um rúm 2% eftir opnun kauphallarinnar. Viðskipti innlent 18.9.2007 10:27
Bankakrísan nær hingað Kim Bergö greinir hjá Fox-Pitt Kelton í London segir að viðvarandi vandræði á breska bankamarkaðinum muni hafa áhrif á markaðinn á Norðurlöndunum þar á meðal á íslandi. Ingólfur Bender hjá greiningu Glitnis segir í samtali við Vísi að bankar og fjármálafyrirtæki hér hafi orðið fyrir barðinu á þessu ástandi eins og sást á tölum í kauphöllinni í gær. Viðskipti innlent 18.9.2007 10:10
Evran í stað dollars Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna segir að svo geti farið að evran komi í staðinn fyrir dollarann í gjaldeyrisvarasjóðum ríkja. Við árslok 2006 voru 66% gjaldeyrisvarasjóða heimsins í dollurum á móti 25% í evrum. Viðskipti erlent 18.9.2007 08:39
Olíuverð aldrei hærra Verð á olíutunnu fór upp í 81 dollar í Bandaríkjunum í gær, sem er hæsta verð á olíutunni í dollurum talið til þessa. Raunviðri olíunnar komst hinsvegar í rúma hundrað dollara í olíukreppunni fyrir 25 árum, ef raungildi dollars þá, er reiknað til raungildis dollarsins núna Viðskipti erlent 18.9.2007 08:26
Gjaldmiðillinn er stærsta málið Stærsta einstaka ákvörðun sem stjórnvöld standa frammi fyrir varðar framtíð krónunnar, að því er fram kom í máli Erlends Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs, í níutíu ára afmæli samtakanna. Viðskipti innlent 18.9.2007 06:00
Ákvörðun bandaríska seðlabankans beðið með óþreyju Nokkur lækkun varð á bandarískum mörkuðum við lokun á Wall street í kvöld. Fjárfestar bíða með óþreyju eftir ákvörðun stjórnar bandaríska seðlabankans en á morgun verður tekin ákvörðun um hvort breyta eigi stýrivöxtum. Viðskipti erlent 17.9.2007 22:17
Úrvalsvísitalan lækkar um 2,42 prósent Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,42 prósent í dag en mest lækkuðu hlutabréf í bönkum og fjárfestingarfélögum. Hlutabréf í Exista hf. lækkuðu mest eða um 3,84 prósent og þá lækkuðu hlutabréf í Straumi-Burðarás Fjárfestingarbanka um 3,41 prósent. Viðskipti innlent 17.9.2007 16:48
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent