Viðskipti
Fasteignamarkaðurinn enn á útopnu Fasteignamarkaður hefur verið mjög öflugur á þessu ári og endurspeglað góðar aðstæður í hagkerfinu til húsnæðiskaupa. Gott atvinnuástand og miklar launahækkanir hafa verið helsti drifkraftur markaðarins ásamt allgóðu aðgengi að lánsfjármagni. Allt þetta hefur gert það að verkum að eftirspurn eftir húsnæði hefur verið mikil og fólksfjölgun í landinu hefur einnig aukið eftirspurn. Fjallað er um málið í Morgunkorni Glitnis Viðskipti innlent 1.10.2007 10:49
Vodofone rekur stærsta víðnet landsins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone skrifuðu á fimmtudag undir samning þess efnis að Vodafone sjái um reksturs stærsta víðnets landsins næstu ár fyrir Menntamálaráðuneytið. Um er að ræða tölvunet sem tengir saman alla framhaldsskóla landsins og símenntunarstöðvar um allt land, samtals um 70 menntastofnanir. Viðskipti innlent 1.10.2007 10:00
DHL semur við Skýrr DHL hefur samið við Skýrr um launaþjónustu og prentvinnslu. Annarsvegar útvistar DHL allri launatengdri starfsemi til Skýrr og hinsvegar mun Skýrr sjá um prentun á ölu útsendu efni DHL. Viðskipti innlent 1.10.2007 09:51
Risasala Eimskips vestan hafs Eimskip hefur lokið sölu á 23 kæli- og frystigeymslum í Bandaríkjunum og Kanada fyrir 385 milljónir kanadadollara eða um 24 milljarða króna. Andvirði sölunnar verður nýtt til að greiða niður skuldir vegna yfirtöku á kanadíska félaginu Atlas Cold Storage í nóvember 2006. Viðskipti innlent 1.10.2007 09:46
Fasteignalánin bíta í afkomu UBS Svissneski alþjóðabankinn UBS greindi frá því í dag að hann þurfi að afskrifa fjóra milljarða svissneskra franka, jafnvirði 211 milljarða íslenskra króna, vegna tapaðra útlána á bandarískum fasteignalánamarkaði. Þetta mun skila sér í því að bankinn tapar á bilinu 600 til 800 milljónum franka á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti erlent 1.10.2007 09:14
Norski olíusjóðurinn eykur hlutabréfakaup Knut Kjær forstjóri Norska olíusjóðsins tilkynnti í vikunni að sjóðurinn myndi auka hlutabréfakaup um 50 prósent. Knut sagði á ráðstefnu ABP lífeyrissjóðsins í Hollandi að hlutdeild sjóðsins í hlutabréfum yrði aukin úr 40 í 60 prósent af eignum. Viðskipti erlent 30.9.2007 20:24
Fasteignamat á Akranesi hækkar Heildarfasteignamat íbúðarhúsnæðis á Akranesi hækkaði um 13,6 prósent samkvæmt endurmati Fasteignamats ríkisins. Bæjarstjórn Akraness fór fram á endurmatið. Fasteignamat eigna á Akranesi nú er 77 prósent af meðalfasteignamati samsvarandi eigna á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 30.9.2007 15:42
Stærri einkaflugvél fyrir góðan rekstur Breska blaðið Telegraph segir að Baugur hafi verðlaunað forstjóra Iceland, frystivöruverslunarinnar í Bretlandi sem er í eigu Baugs, með því að leyfa honum að kaupa stærri einkaflugvél. Viðskipti innlent 30.9.2007 10:36
Fjárhagsstaða breskra heimila batnar Fjárhagsleg staða heimila í Bretlandi hefur batnað um meira en helming á síðustu 10 árum. Ástæðuna má aðallega rekja til hækkandi húsnæðisverðs. Eftir að búið var að taka tillit til skulda heimilanna í lok síðasta árs voru eignir breskra heimila 803 þúsund billjónir íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.9.2007 18:09
Frakki verður framkvæmdastjóri Alþljóðagjaldeyrissjóðsins Dominique Strauss-Kahn hefur verið tilnefndur nýr framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Búist hafði verið við því að þessi fyrrverandi fjármálaráðherra Frakka og jafnaðarmaður í flrönskum stjórnmálum fengi stöðuna. Viðskipti erlent 29.9.2007 15:14
Hagnaður JJB Sports dregst saman Sportvöruverslanakeðjan JJB Sports skilaði 38,3% minni hagnaði á fyrri hluta rekstrarársins en á sama tímabili í fyrra. Félagið, sem rekur 420 verslanir á Bretlandseyjum, hagnaðist um 11,2 milljónir punda fyrir skatta, sem svarar til 1,4 milljarða króna, samanborið við 18,2 milljónir punda árið 2006. JJB Sports er 30% í eigu Exista og forstjórans Chris Ronnie. Viðskipti erlent 28.9.2007 16:57
Sigurður Svavarsson hættir hjá Eddu Sigurður Svavarsson, útgáfustjóri Eddu-útgáfu, hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu nú þegar Edda pg JPV hyggjast sameinast. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eddu. Viðskipti innlent 28.9.2007 14:52
Launakostnaður hærri á Íslandi en í öllum evruríkjum Launakostnaður á Íslandi er hærri en í öllum evruríkjunum þegar horft er til almenna vinnumarkaðarins. Munurinn mælist 30% á 2. ársfjórðungi 2007 en árið 2004 var munurinn 13%. Viðskipti innlent 28.9.2007 12:42
Risasjónvarp á átta milljónir Eitt stærsta háskerpusjónvarp heims, 103 tommu plasmaflatskjár frá Panasonic, er til sýnis í verslun Sense í Kópavogi þessa dagana. Sjónvarpið er í eigu tækjaleigu Nýherja, en þrjú tæki hafa verið pöntuð til landsins til að setja í almenna sölu. Verðið er ekki fyrir alla, 7.990.000 krónur. Viðskipti erlent 28.9.2007 12:00
Langflestir kaupa flugmiða í gegnum netið Vefur flugfélagsins Iceland Express var valinn besti vefurinn á heimsráðstefnu lággjaldaflugfélaga í Lundúnum í síðustu viku. Vefsvæði yfir hundrað lággjaldaflugfélaga tóku þátt í forvali, þar á meðal vefir easyJet, Ryanair, Southwest og JetBlue. Snorri Kristjánsson er vefritstjóri hjá Iceland Express. Viðskipti erlent 28.9.2007 11:00
Þúsund milljarðar króna í lán Stjórnendur enska bankans Northern Rock hafa tekið alls um 1000 milljarða króna í lán frá Seðlabanka Englands til að bregðast við lausafjárskorti. Í síðustu viku tók bankinn lán upp á 650 milljarða króna. Viðskipti erlent 28.9.2007 10:38
Úrvalsvísitalan hækkar í kauphöllinni Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,03 prósent frá því opnað var fyrir viðskipti með hlutabréf í kauphöllinni í morgun. Mestu viðskiptin hafa verið með bréf í FL Group og Landsbankanum. Viðskipti innlent 28.9.2007 10:18
Hlutabréf í AMR hækkuðu í kjölfar bréfs Hannesar Hlutabréf í AMR, móðurfélagi bandaríska flugfélagsins American Airlines, hækkuðu um 25 sent eða 1,1 prósent í gær eftir að fréttir bárust af því að Hannes Smárason, forstjóri FL Group, hefði sent stjórnendum AMR bréf og farið fram á það að gripið yrði til aðgerða til að laga rekstur fyrirtækisins. Viðskipti innlent 28.9.2007 09:52
Lækkun í Japan Verð á hlutabréfum lækkuðu á hlutabréfamörkuðum í Japan í dag. Hlutabréf í ljósmyndaframleiðslufyrirtækinu Canon hækkuðu hins vegar um 2,6 prósent. Viðskipti erlent 28.9.2007 08:38
Hlutabréf lækka í Bretlandi Hlutabréf í Bretlandi lækkuðu í verði við opnun markaða í morgun. Áhyggjur fjárfesta af hækkandi olíuverði skýrir lækkunina að mati sérfræðinga. Viðskipti erlent 28.9.2007 08:25
Tölvuleikirnir teknir í tollinum Miðnæturopnunin í BT gekk ekki að öllu leyti vel og er tollinum á Keflavíkurflugvelli þar helst um að kenna. Innkaupastjóri BT hafði farið til London fyrr um daginn til að sækja tæplega sjötíu eintök af sérútgáfu leiksins (e. limited edition), sem ekki tókst að senda með pósti til Íslands í tæka tíð. Leikina átti að selja um leið og innkaupastjórinn kæmi í hús, enda margir búnir að panta eintak. Það fór ekki betur en svo að maðurinn var stöðvaður í tollinum og leikirnir gerðir upptækir. Viðskipti innlent 28.9.2007 08:00
FL Group þrýstir á breytingar hjá AMR Hlutur FL Group í AMR er kominn í 9,14 prósent. Í tilkynningu frá félaginu er þrýst á um breytingar til að auka virði AMR. Gengi bréfa AMR hefur lækkað um 47 prósent frá því í janúar. FL Group kennir meðal annars um slælegri upplýsingagjöf. Viðskipti innlent 28.9.2007 06:00
Exista græddi 8 milljarða á sænskum bankaslag Áform SEB bankans sænska um að kaupa 20% hlut sænska ríkisins í Nordea leiddi til þess að Sampo Group í Finnlandi hækkaði um fjögur prósent í dag og skilaði sú hækkun sér til Íslands. Hlutur Exista í Sampo hækkaði um 8,3 milljarða króna að markaðsvirði og hækkaði félagið um 1,89% í Kauphöllinni. Þess ber þó að geta að Exista færir hlut sinn í Sampo með hlutdeildaraðferð Viðskipti innlent 27.9.2007 17:59
Úrvalsvísitalan skreið yfir 8.000 Úrvalsvísitalan skreið yfir 8.000 stigin í dag en hún hækkaði um 0,43% eftir daginn og náði 8.005 stigum. Markaðurinn var fremur rólegur, mest hækkun var hjá Century Aluminium eða um 5,4% og gengið styrktist um tæp 0,4%. Viðskipti innlent 27.9.2007 16:56
Hannesi Smárasyni líkt við „flugdólg“ Hannes Smárason forstjóri FL Group þrýstir á AMR móðurfélag American Airlines að auka verðmæti félagsins sem fallið hefur um 50 prósent frá því í byrjun árs. Í bréfi sem hann sendi AMR og birt er á vefsíðu Wall Street Journal í dag segir hann möguleikana meðal annars liggja í að aðskilja vildarklúbb félagsins AAdvantage frá AMR. Viðskipti innlent 27.9.2007 16:19
Samþykkt að breyta Sparisjóði Svarfdæla í hlutafélag Samþykkt var á fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Svarfdæla í gærkvöld að breyta sjóðnum í hlutafélag. Af 120 stofnfjáreigendum greiddu 102 atkvæði með tillögunni en tveir voru á móti eftir því sem segir í tilkynningu. Viðskipti innlent 27.9.2007 11:36
Telja hægt að auka virði AMR um 250 milljarða FL Group telur að hægt að auka virði AMR, móðurfélags bandaríska flugfélagsins American Airlines, um 250 milljarða króna, meðal annars með því að aðskilja vildarklúbb félagsins frá rekstri þess. Viðskipti innlent 27.9.2007 10:53
Færeyingar á botninum Færeyski bankinn Foryo Banki hefur lækkað mest í verði í kauphöllinni frá því opnað var fyrir viðskipti í morgun. Almennt hafa hlutabréf hækkað í verði það sem af er degi. Viðskipti innlent 27.9.2007 10:26
Stofna prentkeðju á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi Íslenska félagið Kvos, sem meðal annars á Prentsmiðju Odda og Gutenberg, hefur gert sérleyfissamning við bresku prentkeðjuna Printing.com um að byggja upp prentþjónustu og sölustarfsemi að þeirra fyrirmynd á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Viðskipti innlent 27.9.2007 09:22
Miklar hækkanir í Asíu Miklar hækkanir urðu á hlutabréfaverði á mörkuðum í Asíu í morgun. Við lokun markaða hafði MSCI vísitalan hækkað um 1,7 prósent. Viðskipti erlent 27.9.2007 08:42
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent