Tónlist

Hitar upp fyrir Anderson með myndbandi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Unnur Birna og Ian Anderson eru góðir vinir og ná vel saman.
Unnur Birna og Ian Anderson eru góðir vinir og ná vel saman. mynd/þorfinnur Sigurgeirsson
„Ég fékk tölvupóst frá Ian þar sem hann spurði hvort ég væri til í að búa til myndband sem hann myndi nota sem upphitunaratriði á tónleikaferðalagi sínu,“ segir tónlistarkonan Unnur Birna Bassadóttir.

Gunnar B. Guðbjörnsson kvikmyndagerðarmaður hjá Sagafilm tekur upp og vinnur myndbandið.

Unnur Birna og Ian Anderson eru vel kunnug hvort öðru því þau hafa starfað saman talsvert í tónlist.

„Við spiluðum fyrst saman árið 2009 í Háskólabíói og svo aftur í Hörpu og í Hofi árið 2013. Þegar ég bjó á Ítalíu hitti ég hann og þá bauð hann mér á tónleika og áttum við góða stund þar,“ útskýrir Unnur Birna. Þá lék Anderson flautusóló inn á lag Unnar Birnu sem ber titilinn Sunshine.

Fjögur önnur atriði koma fram í mismunandi myndböndum, sem verða einnig með á tónleikaferðalaginu sem upphitunaratriði.

Flautuleikarinn Ian Anderson vinnur nú að plötu og fer svo í tónleikaferðalag um Evrópu og Bandaríkin í kjölfar útgáfunnar sem verður síðar á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×