Lífið

Ellefu bankamenn gætu greitt 1700 kennurum eða 2500 löggum árslaun

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar
MYND/Stefán B. Önundarson
Margt nýtilegt mætti gera við þá rétt tæpu fjóra milljarða sem ellefu tekjuhæstu bankamennirnir fengu í tekjur á síðasta ári en þetta eru þeir ellefu bankamenn sem fengu yfir tuttugu milljónir á mánuði í tekjur.

Hér eru nokkrar skemmtilegar staðreyndir um notkun fjögurra milljarða:

- Það væri hægt að greiða hátt í átta hundruð hjúkrunarfræðingum grunnlaun í ár (samkv. lægsta taxta af heimasíðu Fíh)

- Almennur rekstur Listaháskólans væri hólpinn í nærri átta ár (samkv. Fjárlögum 2008)

- Það tæki Þórhall Gunnarsson, ritstjóra Kastljóssins, rúm 415 ár að vinna sér inn þessa upphæð (miðað við mánaðarlaun hans í fyrra)

- Hægt væri að borga Kobe Bryant árslaun og nokkra mánuði til (samkv. Forbes um áætlaðar heildartekjur hans í ár)

- Það væri hægt að greiða yfir sautján hundruð grunnskólakennurum undir þrítugu grunnlaun í ár (samkv. lægsta taxta af heimasíðu KÍ)

- Þú gætir kallað Árna Johnsen glæpamann og stórslys átta hundrað sinnum í fjölmiðlum (miðað við miskabótakröfu Árna Johnsen á hendur Agnesi Bragadóttur)

- Hægt væri að setja saman 2500 manna lið af ófaglærðum lögregluþjónum og borgað því grunnlaun í heilt ár (samkv. taxta af heimasíðu LL)

-Yfir 250 Range Rover Sport af dýrustu gerð væri hægt að smella á götuna (samkv. verðlista B&L)

- Ársframlög Íslands til þróunaraðstoðar til Malaví mætti rúmlega þrettánfalda (samkv. árskýrslu ÞSSÍ 2007)

 


Tengdar fréttir

Hreiðar Már þénaði 62 milljónir á mánuði í fyrra

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, þénaði rétt tæpar 62 milljónir króna á mánuði í fyrra samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun. Hreiðar Már ber höfuð og herðar yfir aðra Íslendinga.

Forseti ASÍ: Á ekki líknarorð yfir kjörin

Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að kjör tekjuhæstu bankamanna séu komin úr öllum takt við íslenskt samfélag en ellefu tekjuhæstu bankamennirnir voru samtals með hátt í fjóra milljarða í tekjur á síðasta ári.

Óskar þess að SUS hætti að vernda þessa tegund af „lítilmagna“

Ögmundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, segir að lykillinn að því að koma í veg fyrir ofurlaun bankamanna og annarra sé upplýsingaflæði. Þess vegna furðar hann sig á því að það sé eitt helsta hugsjónaverkefni SUS, Sambands ungra sjálfstæðismanna, að banna aðgang að skattskrám.

Tekjur ellefu hæstu bankamanna um 4 milljarðar á síðasta ári

Bankamenn báru ekki skarðan hlut frá borði tekjulega séð á síðasta ári ef marka má álingarskrá skattsins sem lögð var fram í gær. Alls voru ellefu tekjuhæstu bankamenn landsins með rétt tæpa fjóra milljarða samtals á síðasta ári og höfðu allir yfir 20 milljónir í mánuði í tekjur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×