Menning

 Fjórar dísur og Diddú

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Dísurnar fjórar og Diddú munu fylla stofuna á Gljúfrasteini af ljúfum tónum á morgun.
Dísurnar fjórar og Diddú munu fylla stofuna á Gljúfrasteini af ljúfum tónum á morgun.
 Dísurnar koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun klukkan 16. Sá hópur er skipaður þeim Eydísi Franzdóttur sem spilar á óbó og enskt horn, Bryndísi Pálsdóttur á fiðlu, Herdísi Önnu Jónsdóttur á víólu og Bryndísi Björgvinsdóttur á selló sem hafa starfað saman frá árinu 1997.

  

Á efnisskránni eru flest þeirra verka sem skrifuð hafa verið fyrir þessa hljóðfæraskipan, en auk þess hafa þær Dísurnar frumflutt ný íslensk verk, sem sum hver hafa verið samin sérstaklega fyrir þær. 

Spilaður verður óbókvartett Mozarts og stef úr Fellini-myndum eftir Nino Rota í útsetningu Jóhanns G. Jóhannssonar.

„Leynigestur“ á tónleikunum verður söngdívan í Túnfæti, Sigrún Hjálmtýsdóttir sem flytur tvö sönglög eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð Halldórs Laxness, Atlantshafið og Bráðum kemur betri tíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×