Innlent

„Vonbrigði mín eru ekkert miðað við veruleika þeirra sem misstu ástvini“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Fjallaleiðsögumenn á Everest tóku í dag ákvörðun um að hætta frekari ferðum á fjallið í kjölfar kjarabaráttu sem til kom vegna snjóflóðsins sem varð sextán félögum þeirra að bana. Íslendingarnir tveir sem staddir eru í grunnbúðum fjallsins segjast styðja ákvörðunina. 

Slysið er það mannskæðasta í sögu Everest. Þeir látnu sem voru allir nepalskir fjallaleiðsögumenn eða svokallaðir sjerpar sem vinna við að koma fjallgöngufólki á tind þessa hæsta fjalls heims.

Ættingjar látnu sjerpanna fengu það sem jafngildir 44 þúsund krónum í skaðabætur frá stjórnvöldum í Nepal. Í kjölfar þess lýstu fjallaleiðsögumenn á Everest yfir óanægju með öryggisbúnað sinn og settu fram kröfur um að líftryggingar þeirra yrðu tvöfaldaðar. Í dag ákváðu þeir svo að leggja alveg niður störf vegna deilunnar og af virðingu við fallna félaga sína.

Fréttastofa náði í dag tali af Vilborgu Örnu Gissurardóttur og Ingólfi Axelssyni, sem stödd eru í grunnbúðum Everest. Þau sögðu bæði að staðan væri mjög óljós og upplýsingaflæði um framhaldið lítið, en að allir fjallgöngumennirnir styði ákvörðun sjerpanna heilshugar.

Ingólfur sagði að nokkrir hópar væru nú þegar lagðir af stað niður á meðan aðrir hyggjast bíða í grunnbúðunum til að sjá hvort deilan leysist. Han sagðist hafa trú á því og vill halda áfram með sínum hópi.

Vilborg Arna hefur aftur á móti ákveðið að halda ekki áfram í ljósi liðinna atburða, en hún ætlaði að ganga sjö hæstu fjallstinda heims á einu ári og var Everest síðasti áfangastaðurinn. Vilborg sagðist vissulega vonsvikin, en tók fram að vonbrigði hennar væru eru ekkert miðað við veruleika þeirra þeirra sem misstu ástvini í slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×