Lífið

„Ég er ljót kona“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
„Ég er ljót kona. Ég er það í alvörunni. Ekki rífast við mig um þetta.“ Þetta skrifar Reddit-notandinn throwmeaway4352 í hjartnæmu bréfi á Reddit. Ástæðan er slæm lífsreynsla sem hún lenti í á næturklúbbi með vinum sínum.

„Ég er ekki of þung. Ég er reyndar í betra formi en margar konur á mínum aldri. Ég klæði mig flott, ég er góð að mála mig. En síðustu helgi þurfti heimurinn að minna mig á að þrátt fyrir þetta reynir fólk að berja mig niður,“ bætir konan við.

Hún segist hafa farið á klúbbinn til að halda uppá afmæli vinkonu sinnar. Hún vildi einnig lyfta sér upp því hún hafði verið í erfiðum prófum í skólanum.

„Af því að ég fer ekki oft út á lífið reyndi ég að líta vel út þetta kvöld. Ég fór í föt sem ég hafði keypt fyrir löngu en aldrei farið í því mér fannst þau vera kynþokkafyllri en það sem ég klæðist vanalega,“ skrifar hún og bætir við að hún hafi einnig málað sig óaðfinnanlega og sléttað hárið. 

„Og þegar ég horfði í spegil kom ég sjálfri mér á óvart. Vá, er þetta ég? Ég lít...vel út!“

Öllum vinum hennar fannst hún líka líta vel út og henni leið vel. Henni fannst hún ekki vera að þykjast vera aðlaðandi heldur fannst henni hún vera það. Þegar á klúbbinn var komið kostaði inn, eitthvað sem vinahópurinn vissi ekki af. Vinirnir borguðu fyrir hvorn annan en enginn vildi borga fyrir hana.

„Strákarnir reyndu allt til að forðast það að horfa í augun á mér. Þeir horfðu á götuna, þóttust kíkja í veskin sín í leit að peningum til að borga fyrir eina stúlku í viðbót. Það var svo augljóst að mig langaði að fara heim. Sem betur fer var vinkona mín með aukapening og borgaði fyrir mig.“

Konan hélt að hún gæti gleymt þessu þegar inní klúbbinn var komið. Hún fór á dansgólfið og dansaði við strák sem vildi greinilega ekki dansa við hana. Hann var sífellt að leita að meira aðlaðandi stúlku til að dansa við, að hennar sögn, og þegar hann sá eina slíka lét hann sig hverfa. Hún segir síðan frá því hvernig ljósmyndari á klúbbnum vappaði í kringum vinahópinn og reyndi að ná góðum myndum þar sem hún var ekki með.

„Ég trúði þessu ekki fyrr en hann kom upp að mér og bað mig um að færa mig. Mér fannst ég svo ljót þá. Það virtist ekki skipta máli hve mikið ég lagði á mig til að líta vel út og líða vel þetta kvöld,“ skrifar konan og endar síðan bréfið á því að hvetja fólk að vera gott við hvort annað.

„Verið vinsamlegri við ljótt fólk, Reddit.“

Lesa bréf hennar í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×