Enski boltinn

Zouma verður frá í hálft ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zouma lenti illa í leiknum gegn Man Utd og hnéð gaf sig.
Zouma lenti illa í leiknum gegn Man Utd og hnéð gaf sig. vísir/afp
Kurt Zouma, miðvörður Chelsea, verður frá keppni næsta hálfa árið vegna hnémeiðsla.

Zouma, sem er 21 árs, sleit krossband í hné þegar Chelsea og Man Utd gerðu 1-1 jafntefli á sunnudaginn og fer í aðgerð í vikunni.

Þetta þýðir að Zouma missir af EM í Frakklandi en hann hefur leikið tvo leiki fyrir franska landsliðið sem verður á heimavelli í sumar.

Zouma, sem kom til Chelsea frá Saint-Étienne árið 2014, lék 23 deildarleiki með Lundúnaliðinu á tímabilinu og skoraði eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×