Bíó og sjónvarp

Zorro snýr aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Hin fornfræga hetja alþýðunnar, Zorro, verður endurvakin á hvíta tjaldinu. Að þessu sinni mun Alejandro de la Vega þó ekki berjast grímuklæddur fyrir réttindum bænda í Kaliforníu á þeim tímum sem Spánverjar stjórnuðu þar. Zorro mun berjast gegn stríðsherrum sem stinga upp kollinum í Kaliforníu eftir fall siðmenningarinnar í náinni framtíð.

Mynd þessi mun bera nafnið Zorro Reborn og áætlað er að töku hefjist í mars á næsta ári samkvæmt Hollywood Reporter. Ekki er búið að finna leikstjóra sem vill taka verkið að sér, né leikara.

Tíu ár eru liðin frá því að myndin The Legend of Zorro, með Antonio Banderas í aðalhlutverki, kom út.

Hver kynslóð hefur átt sinn Zorro og við erum stoltir af því að geta kynnt nýjan Zorro fyrir þessari kynslóð,“ segir Antonio Gennari, framkvæmdastjóri Lantica Media sem sjá mun um framleiðslu myndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×