Fótbolti

Zoran tekur við Selfyssingum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zoran Milkovic.
Zoran Milkovic. Vísir/Pjetur
Zoran Milkovic hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 1. deild karla. Hann tekur við starfinu af Gunnari Guðmyndssyni sem hafði stýrt liðinu í tvö ár.

Þetta kemur fram á heimasíðu Selfoss en Zoran mun hafa þá Jón Steindór Sveinsson og Sævar Þór Gíslason, fyrrum leikmenn liðsins, sér til aðstoðar í þjálfarateyminu.

Zoran Milkovic verður fimmtugur á næsta ári en hann varð Íslandsmeistari fimm ár í röð með bæði ÍA og ÍBV á sínum tíma. Hann lék einnig með Víkingi.

Hann hefur áður þjálfað Selfoss, Leikni og Þrótt hér á landi.Selfoss hafnaði í níunda sæti 1. deildarinnar í ár með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×