Bíó og sjónvarp

Zlatko snýr aftur sem Sergej

Vísir sýnir fyrst allra miðla sex plaköt fyrir kvikmyndina  Borgríki II . Í dag er komið að öðru plakatinu en á því er Zlatko Krickic, sem einnig fór með hlutverk hins serbneska Sergej í fyrri myndinni.

Sergej er glæpakonungur og verðandi faðir sem þráir að flytja og ala upp ófætt barn sitt í heimalandinu en á erfitt með að losa sig frá völdum á Íslandi.

Borgríki II - Blóð hraustra manna er sjálfstætt framhald  kvikmyndarinnar Borgríki sem kom út síðla árs 2011. Ásamt Zlatko eru í helstu hlutverkum þau Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson og Hilmir Snær Guðnason.

Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr myndinni en hún verður frumsýnd í október. Vísir frumsýnir síðan nýja stiklu næsta þriðjudag.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×